Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 48

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 48
206 BÚNAÐARRIT yrða, að skaðinn af heyskortinum í þessum hreppum vorið 1910 hafi verið 45000 kr., ef ýmislegt annað tjón, sem hrepparnir urðu fyrir af heyskortinum, væri talið. Og þá væri skaðinn 22 sinnnm meiri en heyfyrningakostnaðurinn. Menn segja nú að heyfyrningaskatturinn sé árlegt gjald, en fellisskattinn gjaldi menn ekki nema stöku sinnum. Það er rétt, að fjárfellir kemur varla fyrir á hverju ári í sama hreppi. En menn mega muna það, að fellisárin eru býsna mörg, og stundum ekki langt á milli þeirra í sama hreppi. Má t. d. geta þess, að í Saurbæjarhreppi og Geiradalshreppi urðu mikil vanhöld á sauðfé vegna fóðurskorts vorin 1886 og 1887, fáum árum eftir feilinn mikla 1882. Svo má nefna það, að þeir 3 hreppar, sem eg gat; um að hefðu felt sauðfé 1910, höfðu orðið fyrir allmiklum vanhöldum 4 árum áður, nefnil. vorið 1906. Svo urðu þessir sömu hreppar fyrir stórtjóni á sauðfé vorið 1914 aftur eftir 4 ár, og skaðinn, sem þeir urðu þá fyrir, var líklega alt að þvi tvöfalt meiri en 1910. Fellirinn 1914 kom að sumu leyti af því, að heyin írá sumrinu á undan voru óholl og léleg, en enginn vafi er á því, að mikið af fellinum kom beinlínis af heyskorti. Þessir 3 hreppar, sem eg gat um, hafa á 8 árum þrisvar sinnum haft svo mikið tjón af heyskortinum, að nema mundi alls meira en 100000 kr., ef öll kurl kæmu til grafar. Og þó var ekkert af þessum árum framúrskar- andi hart. Hjá þessu tjóni hefðu hrepparnir komist, að minsta kosti að mestu leyt.i, ef þeir hefðu búið sig undir harðindi á hverju hausti. Heyfyrningakostnaðurinn fyrir þessi 8 ár hefði auðvitað orðið mikill, nefnil. 16616 kr. En hann er þó tæplega x/g partur af því beina tjóni, sem heyskorturinn mun hafa bakað hreppun- um á þessum 8 árum. Þau dæmi, sem eg hefi talið hér að framan, tel eg mega nægja til að sanna það, aft tilvinnandi sé að

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.