Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 90

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 90
248 BÚNAÐARRIT Á Barðftstiönd voru kýr ekki látnar Ut fyr en eftir miðjan júní. Við ísafjarðardjúp var alveg gróðurlaust að kalla mátti um fardaga. Á Norðurlandi var vonzku norðaustan- hríð á sumardaginn fyrsta. Vikuna 3.—9. maí var 7—11° frost á Akureyri, nótt og dag. Pollurinn allagður. Jaið- laust á öllum Utsveitum við Eyjafjörð, en nokkur jörð inni í firðinum. Fyrir uppstigningardaginn gekk i norðan- hríð og snjógang með 9° frosti (0.). Úr því voru miklir kuldar, er héldust alla leið fram um miðjan jUní, þótt vægara væri. Af Fijótsdalshéiaði er skrifað, að eftir miðjan apríl hafi komið talsverð jörð alt Ut um miðja Hróarstungu og Ut fyrir Eiðaþinghá, en yzt í Hjaltast.aða- þinghá kom ekki jörð fyr en seint í maí, og jafnvei voiu ær ekki látnar Ut á Eyjum fyr en komið var fram i jUni. Tíð batnaði ekki algerlega fyr en um hvítasunnu. í Skaftafellssýslu kom versti bylurinn á vorinu á upp- stigníngardag. Var þá víðast öllum skepnum gefið nokkra daga, og ám alt vorið öðru hvoru, þar sem hey voru nægileg. Sumarið. Á Suðurlandi var þurviðrakafli frá því um miðjan jUlí til 20. ágUst. Byrjuðu þá rigningar aftur og það svo mikið, að alt votengi fór í kaf. Héldust rign- ingarnar alt sumarið, að undanteknum vikutíma i sept. Náðist þá alt hey, sem ekki var í vatni. 12. sept. gerði ofsaveður af norðri. Fauk þá víða hey, einkum á Kjalarnesi og víða í Vestur-Skaftafellssýslu. Á Vestfjörðum var hagstæð heyskapartíð um hunda- daga, en Ur því gekk til rigninga, og kom aldiei þur dagur til enda allan september. Sumarið eitt hið lang- versta, er komið hefir í manna minnum. Á Norðurlandi meðalsumar. Komu þó ekki veruleg hiýindi til lengdar og aldrei stórkostlegir vatnavextir, og snjó tók ekki alment upp Ur fjöllum, t. d. Vaðla- heiði, fyr en í byrjun september. Hm miðjan september (þurviðravikuna á Suðuriandi) gerði kuldakast af norðri

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.