Búnaðarrit - 01.01.1920, Síða 45
BÚNAÐARRIT
89
íslensku bændastjettar, sem ætlast er til, að hafi vak-
andi auga á öllu ]>ví, er stjettina vardar — og horfir
til umbóta á búnaðarháttum, beint eða óbeint, og sem
er samrýmanlegt við heill og gengi þjóðarinnar.
Vjer ætlum oss eigi að dæma um, hvernig Búnaðar-
íjeiagið hefir leyst þetta hlutverk af hendi á liðnum tím-
um. En benda má á, að framleiðslan hefir aukist um
helming á síðustu áratugum, eins og nánar er sýnt í
ritgjörð þeirri, sem prentuð er í Búnaðarritinu 33. ár,
bls. 206—222, „Um búnaðarhorfur*.
Þó hjer sje eigi um stórvægilegar framfarir að ræða,
hyggjum vjer, að vart sje sanngjarnt að vænta meiri
umbóta, þá tekið er tillit til allra ástæða, vegaleysis,
strjálbygðarf vöntun verkfæra, vöntun vinnuafls, lágs verðs
á afurðum o. fl., o. fl.
Vjer höfum tekið seinna til starfa en aðrir, og verðum
því um stundarsakir að sætta oss við, að vera aftarlega
í lestinni í þessum efnum, sem öðrum. — Til þess að
íinna þessum orðum stað, verða nefnd nokkur dæmi.
Oss vantar enn veganet. Án þess verður þó landið aldrei
vel yrkt. Aðrir eru þar langt á undan, t. d. var byrjað
að leggja járnbrautir
á Englandi..........1830
- Þýskalandi.......1835
í Danmörku.........1844
- Noregi...........1854
En hvenær verður það hjer?
Elsta búnaðarfjelag í Danmörku er „Landhusholdnings-
selskabet", sem var stofnað 1769. En hið fyrsta af hin-
um minni búnaðarfjelögum, kom til sögunnar 1805. En
sambönd mynduðu jósku búnaðarfjelögin 1872. Búnaðar-
fjelagsskapur Dana hefir því verið búinn aö starfa all-
lengi, þegar hjer var tekið til starfa.
Faðir búfræðinnar er nefndur þýskur maður, A. Thaer
(f. 1752 — d. 1828). Hann stofnaði hinn fyrsta búnaðar-
skóla í Möglin á Þýskalandi 1806. Danir komu á fót