Búnaðarrit - 01.01.1920, Blaðsíða 121
BÚNAÐARRIT
115
til Norðurlanda. Matjurta- og ávaxtarækt þeirra hefir
stórmikið orð á sjer, og eru mörg af bestu afbrigðum
matjurta ættuð frá Hollandi og Beigíu. Hollendingar eru
einnig heimskunnir fyrir blómlaukaræktun, og var mikið
af þeirri vöru á sýningu þessari. — Einnig var þar
sýnishorn af öllum iðnaði frá Hollandi, og nýlendum
þess, og þar að auki listasýning, málverk og höggnar
myndir, eftir eldri og yngri meistara. Mjer dvaldist þar
á sýningunni í nokkurn tíma, og eins kynti jeg mjer
garðana í Stokkhólmi nánara.
Jeg hafði nú gert áætlun um ferðalagið norður, og
hjelt því af stað til Jamtalands. Jeg þurfti að hraða
ferðinni, því nú var farið að hausta í norðurhjeruðum
Svíþjóðar, og áætlaði rúmlega hálfan mánuð til ferðar-
innar.
Eftir 20 stunda ferð með hraðlestinni, kom jeg til
Hstersund, sem er aðal-borgin, og hefir um 16 þúsund
íbúa. Þar hitti jeg bæjar-garðyrkjumanninn, „stadstrad-
gárdsmester" 0berg, sem direktor Lind hafði vísað mjer
til. Reyndist hann mjer vel og drengilega, og er hann
með garðyrkjufróðustu mönnum, sem jeg hefi kynst.
Hann sýndi mjer flesta garða bæjarins, og fylgdi mjer
til ýmsra garðyrkjumanna. Fróðlegt var að sjá garðana
í 0stersund, og sá jeg þar margar tegundir matjurta,
blóma og runna, sem eflaust mætti rækta hjer á landi.
0stersund liggur á 63. breiddarstigi, og töluvert hátt
yfir sjávarflöt. Vetur er þar kaldari en á íslandi, en
veðrátta stöðug. Garðrækt er nú almenn á Jamtalandi,
en 0berg sagði, að mjög lítið hefði verið um hana,
þegar hann tók við stöðu sinni fyrir 30 árum. Hafði
fólk þá víða haft mestu óbeit á grænmeti, en stór-
miklar framfarir höfðu orðið þar hinn síðasta manns-
aldur. Stórmikið er ræktað þar af kartöflum, gulrófum
og káli, og var fyrirtaks vel sprottíð í görðum. Einnig
er ræktað töluvert af ávöxtum: rauðber, sólber, þyrniber,
hindber og jarðarber.