Búnaðarrit - 01.01.1920, Qupperneq 125
bönasariut
Sýning á búsáliöldura.
Yorið 1921 hefir Búnaðarfjelag íslands ákveðiö, að
stofna til sýningar á allskonar verkfærum og vinnu-
tækjum, sem hafa verið notuð, og líklegt er, að sjeu
nothæf hjer, við búnaðarstörf.
Tilgangur sýningarinnar er, að fá saman á einn stað
sem mest af þeim verkfærum, sem notuð hafa verið, og
líklegt er, að hægt sje að nota hjer, við bústörf. Þessi
verkfæri á svo að reyna, og um þau að dæma, af þeim
mönnum, sem ætla má, að hafi best vit á þeim hlut-
um, sem um er að ræða. Þessi samanburður og dómur,
á svo að vera til leiðbeiningar fyrir bændur og búalið
á næstunni. Jafnframt þessu er tilgangur sýningarinnar
sá, að sýna breytingar þær, sem hafa orðið á starfs-
háttum, og hvert stefna eigi í þeim efnum.
Á þessa sýningu er öllum gefinn kostur að senda
verkfæri, jafnt einstaklingum sem fjelögum, eða stofn-
unum, hvort sem er útlent eða innlent. Að eins að það,
sem sýnt er, geti átt við staðhætti hjer. Allir sem hafa
gert umbætur á verkfærum, sem að gagni mega koma,
hafa hjer tækifæri til, að koma fram á sjónarsviðið.
Enda mun heitið ríflegum verðlaunum fyrir allt, sem til
umbóta horfir. Þeir, sem eiga eldri verkfæri, eru beðnir,
að gefa stjórn Búnaðarfjelagsins kost á, að fá þau á sýn-
inguna, því mikils er um vert, að hún einnig geti orðið
fjölskrúðug af þeim verkfærum. Margt af því eldra, er
nú að hverfa úr sögunni. En það hefir menningarlegt