Búnaðarrit - 01.06.1927, Side 14
228
BTJNAÐARRIT
Sjera Þórir Þorsteinsson í Deildartungu í Borgarfirði
(á síðari hluta 12. aldar) átti 120 málnytukúgildi á
leigustöðum1 2 3 4 5). Hann hefir að sjálfsögðu haft stórbú í
Deildartungu, svo góðri jörð. Kirkjan mun hafa átt lít-
inn búpening á jörðinni.
Þegar Þorvarður Loftsson ríki á Möðruvöllum fjell
frá (1446) og búi hans var skift, komu í hans hlut til
erfingja 960 kúgildi, mest málnytu*). Margrjet kona
hans fjekk í sinn hlut 99 kúgildi, mest málnytu, þeg-
ar skift var búi (1446) eftir bónda hennar látinn8).
En þessi ríka frú hafði til kaups við bónda sinn 120
málnytukúgildi meðal annara fjármuna, þegar hún gift-
ist 1436*).
Bóndinn sem bjó á Fróðastöðum (um 1500), er Síðumúla-
kirkja átti, hafði tekið á leigu 12 kúgildi málnytupenings
hjá Guðna jónssyni sýslumanni. En auk þess fóðraði hann
fyrir Guðna 8 lömb og einn vetrung. í hagageymslu
átti Guðni hjá honum 40 fjár roskið/’)
Þegar OdUur Gottskálksson byrjaði búskap að Reykj-
um í Ölfusi (1540) tók hann 18 kúgildi á leigu hjá
Skálholtsstól. Þessi kúgildi hafði áður haft Oddur Hall-
dórsson meðan hann var Skálholtsráðsmaður6)
Mörgum gætnum og hyggnum mönnum þótti lítil
landsframför í þessari miklu kúgildaverslun og kúgilda-
eftirsókn manna í landinu. Sem dæmi má benda á dóm
Arnórs Finnssonar sýslumanns og 6 annara manna, er
sátu að dómi með honum (1504). Dómsmenn þessir
tala um fátæka leiguliða, sem hafi svo mikinn fóður-
og leigupening frá ýmsum, að þeir verði heylausir og
1) Sturlunga I, 142.
2) Fornarjefasafn IV, 678—9.
3) Fornbrjefasafn IV, 679.
4) Fornbrjefaeafn IV, 562.
5) Fornbrjefasafn YII, 743 — 44.
6) Fornbrjefasafn X, 576.