Búnaðarrit - 01.06.1927, Page 32
246
Btf NAÐARRIT
átti stóllinn 724 kúgildi samtals í öllum umboöum1 2),
auk þess sem hann átti heima og á útibúum.
Eigi verður vitað með vissu hve margar kýr, eður
annar búfjenaður, var heima á Hólum á jóðrum að vetr-
inum. Staðurinn átti þá 6 útibú og komu því til jafn-
aðar á hvert bú, að Hólum meðtöldum, hjer um bil
15 kýr, 11 geldneyti, 69 ásauðir, 69 geldfjár og 10 hross.
Þessi búfjártala á útibúum stólsins er í góðu samræmi
við þá áhöfn, sem talin er þar síðar.
Frá árinu 1389 er til skjal eða reikningur um útibú
stólsins, en skrá yfir búfjenað heima á staðnum hefir
glatast.
tJtibix Hölastóls 1380.
Staðanöfn:1) Fornt mat jarðarinnar » Geldneyti Asauðir Geldfje pO 6 •o Hross
Bjarnastaðarhlið 30 10 i 158 144 66 14
Geldingaholt 60 16 36 130 5 40 21
Flugumýri 100 15 18 20 3 40 10
Mikligarður 100 19 42 130 65 75 13
Hofstaðnr 24 14 50 81 3 27 25
Egildarholt 10 )) 18 )) )) 90 18
Eigi verður vitað, hvort þessi búpeningur á Hólastaðar-
búunum hefir verið full áhöfn á þeim. Það er þó senni-
legt, að minsta kosti það árið, sem skýrsla þessi nær
yfir. Stóllinn hafði aðeins hálft Egildarholt til ábúðar,
eins og búfjáreign Hólastóls á jörðinni bendir á. Tveim
1) Fornbrjefasafn III, 290.
2) Forubrjefasafn III, 430.