Búnaðarrit - 01.06.1927, Síða 45
BTJNAÐARRIT
259
kúm, sem reknar voru burt, þá kom einnig sama tala
út. Og sjera Jón Halldórsson tekur vitanlega eigi með
þær 6 kýr, sem aldrei voru reknar burt og eftir lifðu í
Miklabæ. Það er t. d. auðsætt af þessu, að Hólastóll
heflr átt 10 kýr í Miklabæ þetta ár, en eigi 11. Það
virðist vera þessi eina kýr Jóns Jussusonar, sem hefir
valdið þessum ruglingi í frásögninni. Aðrar missagnir
eru smávægilegar, og getur hver, sem vill, skilið hvernig
á þeim stendur. Höfuðmisskilningurinn er hjá dr. Þor-
valdi Thoroddsen, og má það merkilegt heita.
Miklibær er að fornu mati 40 hundruð1). En jörðinni
hafa lengi fylgt 2 hjáleigur og er líklegt, að sjera Jón
Broddason hafi nytjað þær með heimajörðinni. Ella hefði
eigi verið fært að hafa þar 26 kýr og 27 eða 28 geld-
neyti á fóðrum. Það þótti hæfileg áhöfn á Miklabæ 1711,
að þar væri 7 kýr, 3 geldneyti og 40 lömb. Alt annað
sett á útigang. Þá voru þar 10 kýr, 1 naut, 3 kálfar,
115 ásauðir, 121 geldfjár og 23 hross2 3).
Máyalilíðarbúid, sem Björn ríki Þorleifsson átti, og
Arnbjörn Snæbjarnarson rændi 1467, var eigi sjerlega
stórt. Þar voru á búinu 4 kýr, 3 geldneyti, 36 lömb og
30 fulloiðnar sauðkindur. En þar voru auk þess 2 bátar
og skreið mikil8). Jörðin var sæmilega stór, 32 hundruð4),
og eigandi búsins annar ríkasti maður 15. aldar.
Þetta bendir til, að eigi var sjerlega stórt búið á öll-
um jörðum á þessum tímum, þótt mikinn pening gæti
þær borið. Þorri bænda voru leiguliðar og borguðu yfir-
leitt hálfu meiri landskuld en nú tíðkast. Þeir hafa
flestir haft fremur lítil bú, og mikið af málnytupeningi
þeirra var leigufjenaður, sem þeir guldn eftir okurleigu,
sem svarar 16a/s°/o ársvöxtum af verði kúgildanna.
1) Jolinsens jarðamat, 264.
2) Árni Magnússon 14, 271.
3) Fornbrjefasafn Y, 488 — 89,
4) Johnsena jarðamat, 160.