Búnaðarrit - 01.06.1927, Side 74
288
BÚNAÐ ARB.IT
— tveir vöndlar — kúm, sem gefið var til nytjar1).
Fóðurtími kúnna á bás var oftast talinn 32 vikur eða
224 dagar2). Fjórðungsvöndullinn var til forna 8,64 pd.
(dönsk) eða 4,32 kg. Átta fjórðunga vættin var þá bjer-
umbil 69 pd. (69,12) eða 34,56 kg. Þegar dagfóður kýr-
innar var 8,64 pd. af heyi en hálfu meira (17,28 pd.)
handa kúnni, væri henni gefið til nytjar, verður vetrar-
fóðrið í fyrra tilfellinu 8,64X224=1 935% pd, en í því
síðara 17,28X224=38702/3. Þetta var kýrfóðrið til forna,
talið í dönskum pundum! Nálega altaf var miðað við
fyrri töluna — fóður handa kúm. sem eigi var gefið til
nytjar — og verður síðar nánara að þessu vikið.
Nú verður að líta á þetta frá annari hlið, eða finna
hið raunverulega heymagn af kýrvelli eða eyrisvelli inn-
bundið að sumrinu í hlöðu eða garð. Taðan Ijettist að
vetrinum frá því hún er innbundin. Enginn hefir enn
rannsakað það ábyggilega, hve mikið hey Ijettast í garði.
Alt sem búmenn hafa sagt um það, eru ágiskanir, en
flestar þó sennilegar eða hjerumbil. Nú verð jeg að geta
þess, að jeg hefi gert athuganir í þessu og byggi á þeim.
Mín reynsla frá Hvítárbakka og Ráðagerði er sú, að sæmi-
lega þur taða, sem lítið bliknar í stáli, Ijettist um 10°/o,
en laklega þur um 15°/o. — Ljettist taðan meira en
um 10°/j, ornar hún of mikið og verður þá lakari til
mjólkurframleiðslu kúnna.
Ef miðað er við 10% rýrnun á töðu, hefir þótt til
forna meðalheyfengur af kýrvellinum 2150 pd. (dönsk)
innbundin í garð eða 1433 pd. af eyrisvelli (743,8 Q fm).
En af nútíðardagsláttu (900 Q fm.) hafa þá fengist
1734 pd. Það er rúmlega 9^2 hestburður, þegar hann
er talinn 180 pd.
Sjera Björn Halldórsson í Sauðlauksdal segir í Atla
að 26 málbandshestar af töðu fáist af einum kýrvelli.
1) Búalög; Rvík, 146, 180.
2) Búalög, Rvík, 108.