Búnaðarrit - 01.06.1927, Side 133
BtiNAÐARRlT
347
78. Gannar Pálsson, bóndi og hreppstjóri á Eetils-
stöðum á Völlum í Suður-Múlasýslu. Búskap sinn byrjaði
hann árið 1885 á hálfri jörðinni. Túnasljettur nema 4
ha., og brotið land utan túns 1,5 ha. Túnið er girt með
fimm þættum gaddavír og traustum torfgarði, 300 metr.
Einnig girðing um beitarhús og meðfram heimreiðarvegi.
Allar girðingarnar samtals eru 1500 metr. — Þegar
jarðabóta-skýrslan er gerð, er hann í undirbúningi með
að girða engjarnar með gaddavír, og nemur sú vega-
lengd 350 metr. Nú eru engjarnar girtar, og auk þess
hefir hann bætt þær með áveitu og framræslu. Sáðland,
bylt og blandað, 1700 —1800 □ metr. Áburðarhús stein-
steypt hefir hann gert, 4 X 2XA metr.
Gunnar hefir kcmið upp íbúðarhúsi steinsteyptu, stóru
og vönduðu, með kjallara. Bygt fjós fyrir 10 nautgripi,
steinsteypt; fjárhús yfir 600 fjár; hesthús fyrir 20 hross
og hlöður, er taka 8—900 hesta. — Vatnsleiðsla er í
íbúðarhúsið og er hún um 100 metr. á lengd.
Gunnar hefir verið hreppstjóri í mörg ár, og gegnt
auk þess flestum öðrum trúnaðarstöríum innan hreppsins.
1914.* 1 2)
79. Einar Árnason, bóndi í Miðey í Austur-Laud-
eyjum í Rangárvallasýslu. Hann hefir búið þar í 27 ár,
fyrstu árin á hálfri jörðinni, því næst í 15 ár á s/i
hlutum hennar, og loks síðustu 9 árin á henni allri.
Þegar hann byrjaði búskap eignaðist hann x/i hluta
jarðarinnar. En seinna keypti hann smámsaman alla
jörðina.
Jarðarbætur og húsabætur hans eru með því mesta,
sem gerist. Hann hefir sljettað 5 ha., þar af er útgræðsla
1) Umsækjendur þetta ár voru 7: 1 úr V.-Skaftafellssjslu,
1 úr Rangárvallasýslu, 1 úr Árnessjslu, 1 úr Borgarfjaiðarsýslu,
2 úr Mýrasýslu og 1 úr Strandasýslu.