Búnaðarrit - 01.06.1927, Page 150
364
BUNAÐARRIT
Þess er getið í skýrslunni, að hann hafi altaf verið
vel birgur af heyjum og hjálpað mörgum í harðindum
og hagleysis-vorum. T. d. vorið 1916 veitti hann 19
mönnum meiri og minni heyhjálp (ljet þá frá sjer hátt
á 14. þúsund pund af heyi). Enda er Hermundur einn
með allra duglegustu mönnum og búmaður góður.
Árið 1932.1)
95. Bjarni Bjarnason, bóndi á Geitabergi í Borgar-
fjarðarsýslu. Hann byrjaði búskap í Katanesi og bjó þar
í 5 ár. Bygði hann þar upp bæinn og gerði ýmsar jarða-
bætur.
Árið 1899 flutti hann að Geitabergi. Þá jörð hefir
hann stórbætt. Jarðabætur hans nema alls 2200 dags-
verkum. Túnasljettun og útgiæðsla nema yfir 1400 dags-
verkum. Túnaukningin er um 3 ha. Af túninu fengust
um siðustu aldamót 160 hestar, en nú fást af því i
meðalári um 400 hestar. — Girðingarnar nema um
500 dagsverkum.
Bjarni hefir bygt upp öll hús á jöið sinni, þar á meðal
íbúðarhús úr timbri, hlöður yfir mestallan heyskapinn,
fjós steinsteypt o. s. frv.
Bjarni hefir gegnt ýmsum opinberum störfum. Hann
er hreppstjóri, oddviti og sýslunefndarmaður, enda nýtur
hann trausts allra, er hann þekkja.
96. Hannes Magnússon, bóndi í Stóru-Sandvík í
Flóa í Árnessýslu. Hann byrjaði búskap árið 1896, þá
á hálfri jörðinni, en fjekk hana alla til ábúðar nokkrum
árum seinna. Hann byrjaði snemma á jarðabótum og
vann að þeim af kappi, og þó sjerstaklega eftir að
stofnað hafði verið búnaðarfjelag þar í sveit (Sandvíkur-
1) UmBækjendur þetta ár voru að eina 4: 2 úr ÁrnesBýslu
Og 2 úr Borgarfjarða.rsýslu.