Búnaðarrit - 01.06.1927, Page 152
BÚNAÐARRIT
366
son að jörðin sje húsuð stórum og traustum bygging-
um og „líkist meira höfðingjasetri en bóndabæ".
Brautir hefir Friðrik lagt á þrjá vegu frá bænum.
Fyrstu arin var hann leiguliði (jörðin landssjóðseign), en
seinna festi hann kaup á henni. — Árið 1907 brann
hjá honum bærinn og bygði Friðrik hann þegar upp
að nýju, og styrkti hið opinbera bygginguna að nokkru
(700 kr.).
Friðrik hefir verið framúrskarandi eljumaður og notað
hveija stund, sem hann gat, til þess að bæta jörð sína.
Er líka til þess tekið, hvilíkum stakkaskiftum hún hefir
tekið í höndum hans.
98. Sæmundur Oddsson, bóndi í Eystri-Garðsauha
í Rangárvallasýslu. Hann byrjaði búskap árið 1899 í
Langagerði (í Hvolhreppi) og gerði þar nokkrar jarða-
bætur. Fluttist hann síðan að Garðsauka og festi kaup
á jörðinni. — Þá var túnið þar 4,3 ha. og fengust af
því 130 hestar. Síðan hefir hann sljettað í þvi 2,5 ha.
og aukið það um 10 ha.
Girðingar um tún og engi nema 3800 metr. Auk
þess hagagirðing, einþætt, 1200 metr. á lengd. Haug-
hús 80 ten.metr. Aukið matjurtagarða og bætt mikið
engjar með áveitu. Gefa þær af sjer um 600—700
hesta. Allur heyskapur á jörðinni er nú um og yfir
1000 hestar, en var fyrir 20 árum 300—400 hestar.
Jarðabætur Sæmundar nema alls 4200 dagsverkum.
Öll hús á jörðinni hefir hann bygt upp, þar á meðal
íbúðarhús úr timbri, járnvarið, 15x6 metr., fjós fyrir
15 nautgripi og hlöður fyrir öll hey. — Vatnsleiðsla er
í bæinn.
Fjórum sinnum hefir Sæmundur fengið verðlaun úr
Ræktunarsjóði.