Búnaðarrit - 01.06.1927, Page 156
370 BÚNAÐAftRIT
Síðan sjóðurinn var stofnaður, 1875, hafa komið 498
umsóknir, en umsækjendur eru eitthvað i kringum 300.
Margir hafa því sótt um verðlaunin oftar en einu sinni,
sumir 5 — 6 sinnum og einn fjekk þau fyrst við 8. um-
sókn.
Umsóknir og verðlaun skiftast þannig niður á lands-
fjóðungana.:
Umsóknir Verðlaun
Suðurland .... 55
Vesturland . . . . . . 79 18
Norðurland . . . . . . 84 19
Austurland . . . . . . 28 8
Af sýslunum heflr Árnessýsla fengið flest verðlaunin
eða 19, enda hafa komið þaðan flestar umsóknir. Næst
er Borgarfjarðarsýsia með 12 verðlaun, þá Rangárvalla-
sýsla, Gullbringu- og Kjósarsýsla og Húnavatnssýsla með
9 hver, Yestur-Skaftafellssýsla og Mýrasýsla með 6 hvor,
Dalasýsla og Skagafjarðarsýsla með 5 hvor, Suður-Múla-
sýsla með 4, Suður-Þingeyjarsýsla og Noiður-Múlasýsla
með 3 hvor, Norður-ísafjarðarsýsla, Strandasýsla, Eyja-
fjarðarsýsla og Norður-Þingeyjasýsla hver með 2 og loks
Snæfellsnessýsla með 1.
Sjest á þessu að enn hafa nokkrar sýslur farið var-
hluta. þessara verðlauna, enda fáar umsóknir frá þeim
komið, Flestar eru umsóknirnar af Suðurlandi eða nær-
sveitunr Reykjavíkur. Er það ef til vill eðlilegt, þar sem
menn hafa þar yfirleitt betri aðstöðu til þess að sækja
um verðlaunin en annarstaðar. Þaðan eru því einnig
langflestar endurtekningarnar. í Árnessýslu koma t. d.
hjer um bil 2 umsóknir á hvern umsækjanda.
Er vjer lítum yfir þessi 50 ár, er sjóðurinn hefir
starfað og lesum um alla þá ágætismenn, er þar hafa
fengið verðlaun, og það að maklegleikum, þá fer ekki
hjá því að við rennum huganum með djúpu þakklæti