Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 155
Hlin 153
Búnaðarsamband Suðurlands styður Samband sunnlenskra
kvenna með 6000 kr. árlega.
Frá Heimilisiðnaðarfjelagi íslands, Rvík: Þú spyr um aðferð
við að hvitta ullarvörur. Þegar jeg sá hvað vörurnar frá Gefj-
unni voru hvítar, fór jeg að reyna fyrir mjer. — Mjer tókst
misjafnlega. — Efnið sem jeg nota heitir Brintoverilte 3%, og
fæst í Lyfjabúðum. — Efnið sem á að bleija er látið blautt í
löginn. Það er misjafnt hve það þarf að liggja lengi. Jeg er altaf
að skoða það öðru hvoru. Sjalið þitt var t. d. einn kl.tíma í leg-
inum, en það var dauf blanda. Mjer finst það fara betur með
viðkvæmt efni að láta það liggja lengur, en hafa löginn daufan.
Efnið er þvegið vel á eftir úr sápuvatni. Leirskál skal nota,
ekki blikkílát. — (Brintoverilte leysir lit.) — Hyrnur og sjöl
spýti jeg blaut á spjöld (með títuprjónum) og læt þau þorna
þar.
Úr Árnessýslu á jólaföstu 1958: — Jeg er búin að prjóna mik-
ið af sokkum og vettlingum á barnabörnin. Þau eru nú á milli
20 og 30, og ekkert má fara í jólaköttinn, og góður Guð gaf mjer
heilsu til að geta bætt úr því. — Mjer mundi engin jól finnast,
ef jeg gæti ekki glatt barn.
Höfn í Hornafirði á Þorra 1959: — Hjer er snjólaust með öllu
og hefur verið í allan vetur. — Yfirleitt er altaf besta veðrið
hjer á Suð-Austurlandi, a. m. k. að vetrinum.
Hjeðan er alt gott að frjetta. Tíð hefur verið ágæt og gæftir
sæmilegar það sem af er vertíð. — Já, vel man jeg morguninn
fagra, er við gengum fram og aftur á uppfyllingunni hjerna, er
við biðum eftir skipinu. — Þá var fagurt í Hornafirði, eins og
svo oft fyr og síðar. — Blessað landð okkar er fegursta og besta
landið í heiminum.
Þistilfirði á Þorra 1959: — Þú minnist á ullina. Fyrir nokkr-
um árum var hætt að þvo hana heima nema til heimanotkunar
á stöku bæ. — Flestir senda óþvegna ull í lopa.
Jeg hef hug á að þvo næsta sumar og taka svo ofanaf. — Hef
sent þel í verksmiðjuna og fengið indælt band, einfalt í skyrtur
og þrinnað, mórautt og grátt í plögg. — Það var gaman að fara
þegar ullin var að verða þur, og velja úr öllum flokknum bestu
og hvítustu lagðana, jeg sakna þess. — Kann ekki að velja úr
óþveginni ull, eða ekki eins, fyrir utan hvað það er leiðinlegt.
Úr Ólafsvík er skrifað á Þorra 1959: — Hjá okkur er dásam-
legt tíðarfar, sama sem snjólaust, logn og heiðríkja á hverjum
degi. — Blessuð sólin er að byrja að skína á okkur eftir 6 vikna
sólhvörf. — Hjer er siður eins og víðar að fagna sólinni með
pönnukökukaffi.