Búnaðarrit - 01.01.1968, Blaðsíða 129
SKYRSLUR STARFSMANNA
123
1. Beitai'bol gróðurlenda
Síðastliðið ár voru gefin út 10 gróðurkort af afréttum á
Suðurlandi eftir rannsóknum, sem unnið er að við Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins. Árið áður komu út 6 kort.
Á árinu var unnið að því á vegnm Landgræðslunnar að
reikna út flatarmál gróins lands af kortunum og jafn-
framt beitarþol þeirra, og liggur nú fyrir beitarþol eftir-
talinna afrétta: Biskupstungna-, Hreppamanna-, Flóa- og
Skeiðamanna-, Gnúpverja- og Landmannaafrétta. Aðeins
á einum þessara afrétta, Hrunamannaafrétti, var minni
fjárfjöldi en svaraði til beitarþols. Hinir voru ofsetnir.
Niðurstöður rannsóknanna voru birtar í riti, er gefið
var út af Rannsóknastofnun landbúnaðarins s. 1. vor, en
einnig ræddi ég þær á bændafundum. Stefnt er að því,
að fækkun fjár á þeim afréttum, sem ofsetnir eru, verði
framkvæmd með skilningi og samþykki viðkomandi
bænda, en ekki með lagaboðum. Til þessa hafa undir-
tektir þeirra verið með ágætum, enda liafa þeir nú orðið
fullan skilning á nauðsyn þess fyrir gróðurlendin og af-
urðir búfjárins, að afréttir séu ekki ofsetnir.
1 vetur er unnið að útgáfu 10 gróðurkorta og litreikn-
ingum á þeim. Eru það kort af afréttum Laugdæla,
Grímsnesinga og Borgfirðinga, svo og kort af allri Gull-
bringusýslu.
2. Gróðurverndarnefndir
Samkvæmt 19. gr. landgræðslulaganna skal gróðurvernd-
arnefnd starfa í liverri sýslu, þar sem þess er talin þörf,
og fól landgræðslustjóri mér að annast skipun þeirra.
Gróðurverndarnefndir liafa nú verið skipaðar í öllum
sýslum landsins, nema í Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu, Dalasýslu og Strandasýslu, en þar var ekki talin
þörf á slíkum nefndum að sinni. Að auki voru nefndir
skipaðar í Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjavík og á Akur-
eyri. Á árinu fór ég um landið og liélt fundi með nefnd-
unum, og var þar gengið frá skipun þeirra og hlutverki.