Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 219
LANDBÚNAÐURINN
213
sem það kemur seint eða snemma. Verzlunarfyrirtækin
og lánastofnanir verða að sjá um sinn liluta, en síðar
kennir að skuldadögum. Þá er fyrsta atriðið að fá arð
af öllum skepnum, því að aðeins með honum geta bænd-
ur greitt fóðurbætisskuldirnar. Bændur verða því að
vera vel á verði með fóðrun í vetur og vor. Spara þarf
heyin, svo að þau endist fram í gróanda, en bæta úr
beyskortinum með kjarnfóðurgjöf. Ráðunautar Búnaðar-
félags Islands og béraðsráðunautarnir rnuhu leiðbeina
búfjáreigendum um fóðrun bæði í ræðu og riti. Notið
ykkur þær leiðbeiningar.
Gengislækkunin mun því miður valda landbúnaðinum
erfiðleikum í fleiru en verðbækkun á kjarnfóðri. Öll ó-
hófsverðþensla er íslenzkum landbúnaði hættuleg eins og
öllu þ jóðfélaginu. Þegar verðlag búvöru fer lækkandi
víða um lieim, þá er hart að þurfa að búa við stórbækkað
verð á rekstrarvörum landbúnaðarins bér, ekki sízt vegna
þess að bændur liafa á undanförnum árum orðið nokkuð
varhluta um tekjur fyrir vinnu sína og eiga því enn erf-
iðara en aðrir með að taka bvers konar áföll af atvinnu-
rekstri sínum yfir á naumar vinnutekjur sínar. Of fáir
bændur eiga sparifé til að grípa til, þótt bændastéttin sé
í eöli sínu bæði sparsöm og ráðdeildarsöm. Stjórnarfarið
undanfarna áratugi, J>essi undanlátssemi við verðþensl-
una og síendurteknar gengisfellingar, sem eru bverju
sinni ekkert annað en kvittun fyrir lélega fjármálastjórn,
liefur dregið úr sparnaðarlivöt bænda eins og annarra,
Jiótt bændur bafi tregazt lengur en aðrir við að viður-
kenna, að vonlaust sé að búast við lieilbrigðu fjármála-
lífi.
Bændur eiga úr vöndu að ráða og einnig þeir, sem
eiga að leiðbeina Jieim í búskap og fjárfestingarmálum.
Sé efnabagslífið beilbrigt, er lítil bætta á, að bændur
efni til meiri fjárfestingar og skuhlasöfnunar en brýn
nauðsyn er á, vegna þess að J)á Jiarf að greiða bverja
skuld með sama verðmæti og tekið var að láni. Við slík-