Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 166
160
UÚNAÐARRIT
sknrðgröft, og fyrir 1. maí í fyrsta sinn 1968 senda stjórn
Búnaðarfélags íslands sundurliðaðar pantanir og áætl-
anir, hver fyrir sitt umráðasvæði um þann skurðgröft,
sem þeir telja æskilegan á liverri jörð næstu fimm árin.
Búnaðarfélag Islands gerir síðan lieildaráætlun til
næstu fimm ára um, hversu mikið skuli grafa á hverju
ræktunarsvæði. Þá skulu héraðsráðunautar árlega fyrir
1. maí senda Búnaðarfélagi Islands endurskoðaðar áætl-
anir fyrir næsta ár.
Búnaðarfélag Islands lætur síðan framkvæma nauðsyn-
legar mælingar og annan undirhúning, sem þarf til að
hjóða verkið út. Jarðræktarráðunautar Búnaðarfélags Is-
lands hafa umsjón með þessuin áætlunum og skera úr
um vafaatriði.
Þriðja málsgrein verði fjórða og orðist svo:
Þegar endurskoðaðar áætlanir livers árs liggja fyrir,
samþykktar af Búnaðarfélagi Islands, skal skurðgröftur
á liverju ræktunarsvæði boðinn út. Þó er ekki skylt að
bjóða út á þeim ræktunarsvæðum, þar sem viðkomandi
ræktunarsambönd annast skurðgröft með eigin vélum,
enda tilkynni þau Búnaðarfélagi Islands það. Útboð
skulu fara fram fyrir 15. marz ár livert. Búnaðarfélag
Islands gerir útboðin fyrir hönd þeirra samtaka, er sjá
um skurðgröft fyrir bændur á hverju ræktunarsvæði,
sbr. 20. gr. 2. málsgr., og ákveður ásamt fulltrúa viðkom-
andi ræktunarsvæðis, hvaða tilboði skuli tekið og livaða
tryggingar verktakar skuli setja. Búnaðarfélag Islands
samþykkir taxta þeirra ræktunarsambanda, sem undan-
þegin eru útboðum, og tilkynnir þá viðkomandi aðilum,
áður en skurðgröftur hefst á liverju vori.
Ákvæði til bráðahirgða:
Þeir aðilar, sem gert Iiafa sanminga um skurðgröft
samkv. 20. gr. jarðræktarlaga það ár, sem lögin taka
gildi, skulu njóta fulls framlags á þess árs framkvæmdir,
enda þótt annar grafi fvrir þá en samþykktur verktaki
ræktnnarsvæðisins.