Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 25
M 0 RGUNN
19
þessuxn hefir t. d. kornið hið merkilega Doris Fischer-mál, sem
prófessor Haraldur Níelsson hefir skýrt mönnum hér frá.
Mörgu merkilegu hefi jeg orðið að sleppa hér, sem gerzt
hefir t. d. á meginlandi Evrópu, svo sem rannsóknum prófessors
Zöllner’s á miðlinum Slade, en tilgangurinn hefir verið að
fylgja aðallínunum í þróun þessa máls, og varð því sérstak-
lega að snúa athyglinni að enskumælandi þjóðum. Enska og
ameríska félagið hafa einkum haldið sér við andlegu fyrir-
hrigðin, en á meginlandinu hafa menn fremur snúið sér að
þeim líkamlegu. Eusapia Palladino (1854—1918) var frægur
ítalskur miðill, og var hún rannsökuð af vísindamönnum úr
ýmsum löndum, sem sannfærSust yfirleitt um veruleik fýrir-
brigðanna, þrátt fyrir það, að hún varð hvað eftir annaS
uppvís að því, aS „hjálpa til“ á venjulegan hátt. En fyrir-
brigðin gerðust einnig þá, þegar ekki var unt að koma nein-
um svikum við. Af vísindamönnum, sem athuguðu hana og
sannfærðust, má nefna prófessor Lombroso, frægan ítalskan
geSveikralækni (1891), prófessor Schiaparelli, frægan stjörnu-
fræðing, prófessor Richet, lífeðlisfræðinginn nafnkunna, sem
hefir nú gefið út merkilegt rit um rannsóknir sínar á dular-
fullrun, líkamlegum fyrirbrigðum, heimspekinginn Carl du
Prel (1892), prófessor Ochorovicz (1893—4), Sir Oliver Lodge
og F. W. H. Myers (1894), o. s. frv. Enn fremur má geta þess,
að enska sálarrannsóknafélagið setti nefnd manna til að rann-
saka hana árið 1908, og var meðal annarra í henni Hereward
Carrington, ágætur sjónhverfingamaður. Árangurinn varS
hinn sami og áður, — að fyrirbrigðin gerðust. —
Á síSari árum hafa þrír menn rannsakaS einna mest
líkamleg fyrirbrigði og sannfærzt um veruleik þeirra. Það
eru þeir dr. Crawford á írlandi (nú dáinn), dr. Gustave
Geley á PrakkJandi og dr. von Sehrene.k-Notzing á Þýzkalandi.
I París er mikil stofnvm til sálarrannsókna, Institut Meta-
psyeliique International, sem gefur út merkilegt tímarit, Eevue
Metapsychique. Er stofnunin gjöf frá frönskum auðmanni og
spíritista, hr. Jean Meyer. Á Þýzkalandi er og gefið út tíma-
• 2*