Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 7
Trú oci spíritismi.
Útvarpserindi eftir Einar H. Kvaran.
Útvarpið hefir farið þess á leit við mig, að eg flytti
S. R. F. 1. þau tilmæli þess, að það kysi mann til þess
að flytja erindi í útvarpinu með þessari fyrirsögn. Fé-
lagið hefir kosið mig og fyrir því er eg hér. En þó að
eg sé hér að þessu leyti sem fulltrúi þess, þá ber eg einn
ábyrgð á því, sem hér verður sagt, því að samkvæmt
lögum félagsins geta í því verið menn með gagnólíkum
skoðunum.
Það er nokkur vandhæfni á því að tala um spíritism-
ann í sambandi við trúna. í spíritistisku hreyfingunni
kennir svo margra grasa. Þar eru kristnir menn og Gyð-
ingar, Múhameðstrúarmenn og Búddatrúarmenn og
menn, sem ekki höfðu aðhylst nein trúarbrögð áður en
þeir kyntust spíritismanum. Sálarlíf þessara inanna
ber, eins og að líkindum ræður, nokkurn blæ af upp-
eldi þeirra og fortíð. í augum margra þeirra er spíri-
tisminn ekki nein sjálfstæð trúarbrögð, heldur undir-
staða allra trúarbragða. í augum annara hefir spíri-
tisminn í sér fólgið alt það, sem trúarþörf þeirra krefst.
Spíritisminn er sprottinn upp af þeirri athugun á
sálrænum fyrirbrigðum, sem nefnt hefir vei'ið hér á
landi sálarrannsóknir. Þessi athugun hefir, eftir því
s.em spíritistarnir líta á, sannað að fullu framhaldslíf
mannanna eftir dauða líkamans, og að unt sé, þegar
sérstök skilyrði eru fyrir hendi, að ná sambandi við
1