Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 47
MORGUNN
41
og þeir, sem áttu sjálfir vagna, óku þangað út til að hlýða
á hann. Að lokum lagði sóknarpresturinn það til við bisk-
upinn, að Elliott væri veitt brauð, sem hann gæti lifað af.
Óðalseigandi nokkur veitti honum prestsstarf í Honi-
ley hjá Kenilworth, og skömmu síðar var honum boðið
brauð í Snitterby í Lincolnskíri. Þar þótti hann svo snjall
prédikari, að kirkjan rúmaði ekki alla, sem sóttu til hans.
Merkilegt áskorunarskjal var samið og látið ganga milli
þeirra, sem réðu veitingu á kirkjulegri stöðu. Undir það
rituðu 5 héraðsdómarar og 15 kirkjueigendur í nágrenn-
inu. í skjalinu var lögð eindregin áherzla á, að Elliott hefði
góða hæfileika til þess að hafa á hendi miklu æðri stöðu.
En það bar engan ávöxt.
Honum voru þó enn veitt tvö brauð, en bæði uppi í
sveit og mjög tekjurýr. En í maí 1934 fékk hann loksins
Hfvænlegt brauð og varð sóknarprestur við St. Peters
söfnuð í Cricklewood. Og þótt hann hafi verið þar aðeins
18 mánuði, er söfnuðurinn orðinn fjórum sinnum stærri
en þegar hann kom.
Tilraunahringur, sem hann hefir stofnað, er að stað-
Mdri sóttur af 50 manns, og er það miklu meira en vant
er að vera við kirkju í úthverfi.
Það munu fáir menn vera, sem verðskulda fremur
að fá einhvern af þeim feitu bitum, sem kirkjan hefir
að bjóða.
,,Hvers vegna eruð þið spíritistar svo tortryggnir við
°kkur klerka, sem aðhyllumst málstað ykkar?“ spurði
hann fréttaritara frá Psychic News. „Við höfum ekki að
hyllst hann“, sagði hann, „til þess að geta hagnast eitt-
hvað á því, eins og sumir af ykkur virðast halda. I raun
veru tökum við með því á okkur að verða fyrir skömm-
Um og sviptum sjálfa okkur allri von um háa stöðu í
kirkjunni“.
# * #
Eg hefi nú sagt yðurykæru tilheyrendur, sögu þessa