Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 134
128
MORGUNN
þessum ummælum Vale Owens, gerir hann ráð fyrir því,
að sumt, sem boðað er í þessari bók, muni einhverjum
þykja nýstárlegt, en alt er það skynsamlegt og sannfær-
andi. Eg vil ráða þeim, sem áhuga hafa á því að kynnast
hinum nýja boðskap um annað líf, að afla sér þessarar
bókar. Hún kostar 2 shillings og er gefin út af Rider &
Co. í London. Eg ætla ekki að setja hér neitt af því, sem
tvímælis kann að orka, heldur eingöngu það, sem sagt
er um guðdóminn.
„Hefi eg séð meistara minn, hinn kross-
Hefir ha
a"n.seS festa frá Nazaret? Eg vildi óska, að mér
Jesum K.nst: r
hefoi auonast ao sja þa sæluríku sjon, ems
og sumum öðrum hefir auðnast það. Hann er umhverfis
oss, og með oss og í oss. Þó að augu mín hafi enn ekki
litið hans dýrð, hefi eg á dulrænum augnablikum haft
ljósa tilfinning fyrir nálægð hans. 0, Jesús, meistari minn,
eg óska, að eg megi verða betur og betur verðugur þess að
þjóna þér, og meira og meira líkur þér!
„Hefi eg séð guð? Það er óhugsanlegt.
Engin sál getur séð guðdóminn í allri hans
hátign og ljóma, sem engan hefir dreymt
um, en tilfinningin fyrir návist guðs er hvarvetna. Vér
vitum, að hann er til. Vér sjáum sönnunargögn fyrir
veruleik hans alstaðar umhverfis oss, og finnum þau hið
innra með oss. Guðstrúarleysinginn þekkist ekki í hinu
andlega lífi. Guð er mjög nærri oss öllum. Þó að vér get-
um ekki séð guð, þá getum vér skynjað návist guðdóms-
ins. Jafnvel hið minsta barn hér verður í sál sinni einhvern
Hefir hann sé'S
gu?S?
veginn vart við guðdóminn. Vér erum yfirskygðir af kær-
leik hans, og í mjög verulegum skilningi finnum vér, að
vér hvílum á hinum eilífu armleggjum“.