Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 26
20
MORGUNN
bezta lagi. Mun hann hafa flutt þær sem erindi á fundum
vorum, og ef til vill enn fleiri erindi, þótt ekki séu prent-
uð, því að ekki hefir „Morgunn" komist yfir að flytja öll
erindi, sem haldin hafa verið.
Eg mun nú ekki mega tefja fundarstörfin mikið leng-
ur. En áður en eg hætti, vil eg mega segja nokkuð, sem
eg hygg, að þér viljið heyra. Eg gat um áðan, að þeir, sem
yfir væru komnir, hefðu samband við okkur, og að eg
mundi víkja að því aftur. Eg átti við það, að kveldið eftir
að hann lézt, sátum við nokkrir vinir hans á sambands-
fundi. Gjörði þá stjórnandi miðilsins okkur við vart, að
Sigurður væri hjá okkur, og flutti okkur frá honum þau
ummæli: „Það var þá svona; ekki er nú margt að því“.
Þóttist eg í þeim þekkja eigið venjulegt málfar vinar
míns, stuttar setningar, í fullri merkingu, fremur eins og
hugsanaleiftur, heldur en ætlað öðrum að heyra. Minti
það á, að hann hefði nú sannreynt orð skáldsins nafna
síns: „Hræðstu ekki, hel er fortjald, hinumegin birtan er“.
Þá var stjórnandinn spurður, hvort hann gæti sagt,
hvar hann hefði geymt áríðandi skjal (lífsábyrgðarskír-
teini), sem hafði verið leitað að, en ekki fundist. Eftir
stutta umhugsun svaraði hann, að það væri í skrifborð-
inu hans. En nú voru tvö skrifborð, og var hann spurður,
í hvoru það væri. Hann svaraði, að það væri í dekkra
borðinu, það væri með öðrum skjölum í kassa, og bæði
hann bróður sinn leita í þeim.
Þegar leitað var í dekkra borðinu stóð það heima, að
kassinn var þar með skjölum í. Að vísu var þar ekki skír-
teinið sjálft, en þar lágu önnur skjöl, sem voru nátengd
því, þar sem ákveðið var, hve mikið yrði borgað út á skír-
teinið og hvernig iðgjöld greidd.
Þessi skjöl voru þannig til komin, að fyrir 10—12
árum, þegar gengismunur var 20—30% á dönskum og ís-
lenzkum krónum, fór lífsábyrgðarstofnuninni frá 1871 að
óróast, að eiga að fá iðgjöldin í íslenzkum krónum, en
verða að borga út ábyrgðarféð í dönskum krónum. Gjörði