Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 15
MORGUNN
9
aðir menn eru inni á þessum leiðum, jafnvel hér á landi,
þó að hér virðist sjaldnast lagst djúpt um trúmálin. Eg
hefi fyrir framan mig enska bók, sem rekur í löngu
máli og af miklum fróðleik þessar mótbárur gegn kristn-
inni, sem eg hefi nú að eins vikið að með fáeinum orð-
um. Bókin kom út í september 1933 og var prentuð
fimm sinnum í þeim mánuði. Margir urðu til þess að
rita kuldalega um bókina, en lesið hefi eg það, að í eng-
um ritdóminum hafi verið gerð nein tilraun til að
hnekkja þeim staðreyndum áhrærandi kristin og heið-
in trúarbrögð, sem höfundurinn byggir ályktanir sínar
á. Mér er kunnugt um það, að ýmsir menn hafa lesið
þessa bók hér á landi, og að mikið hefir þótt til hennar
koma. Eg hygg að það sé frá biblíugagnrýninni og rann-
sóknum á trúarbrögðum fornþjóðanna að kristnin hafi
fengið viðsjálasta höggið.
Hvað ætti eg að segja við slíkan mann? Eg gæti
ekki farið að þrátta við hann um það, sem hefði hrakið
hann út af trúarbrautinni. Eg hefði ekki þekkingu til
þess. Eg gæti ekkert annað gert en sagt honum, að ef
hann hefði nokkurn vilja á að komast að sannleikan-
um, þá skyldi hann gefa spiritismanum gætur. Hann
skyldi fyrst athuga, á hverjum rökum hann væri reist-
ur, hvort honum fyndist ekki, við nákvæma eftirgrensl-
un, grundvöllurinn óhagganlegur. Þar næst skvldi hann
kynna sér vel, hvað þeir segðu, sem komnir eru inn í
annan heim, þar á meðal það, hvað þeir boðuðu af eig-
in reynd um Jesú frá Nazaret, starf hans og vald í öðr-
um heimi og í þessum heimi. Eg hugsa mér, að við þá
eftirgrenslun mundi hann komast að þeirri ályktun, að
þó að kirkjan hafi verið alt annað en óskeikul og ef til
vill hafi margt hlaðist utan á hana, sem er fánýtt og
villa, þá hafi hún verið að boða mönnunum óumræði-
lega mikilvægan sannleika, sem ástæða sé cil að vera
henni þakklátur fyrir. Og að það eigi ekki að vera stein-