Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 86
80
MORGUNN
Bað frú Guðrún stjórnendur sína að reyna til ef
mögulegt væri að hjálpa konu þessari eitthvað, og reyndi
jafnframt til þess að biðja fyrir veru þessari. Að nokk-
urri stundu liðinni losnaði kona þessi undan þessum áhrif-
um og náði sér aftur. Töluðu þær nokkuð frekar um þetta;
að síðustu spurði frú Guðrún konuna: „Hefirðu aldrei
reynt til þess að biðja fyrir þessum manni og hugsa hlý-
lega til hans?“ „Biðja fyrir honum“, endurtók konan, „nei,
eg hata hann“, og eitthvað sagði hún fleira, er lýsti andúð
hennar á veru þessari. Enginn okkar getur sagt um það,
hvað gerðist þessa stund, en kona þessi varð ekki framar
vör við nærveru hans. En frú Guðrúnu var það ljóst, að
eitthvað frekara þurfti að gera fyrir þennan gest, þetta
var aðeins hálfur sigur að hennar áliti, henni var það
ljóst að hann mundi hafa ósegjanlega þörf fyrir samúð
og hjálp, og enginn vafi er á því, að þrá frúarinnar eft-
ir því að veita honum einhverja aðstoð, muni hafa verið
stjórnendum hennar kærkomin beiðni.
f byrjun fundarins, er haldinn var á heimili E. H.
Kvarans 14. okt. f. á., lét stjórnandi frúarinnar, I. K., þess
getið, að á fundinn myndi verða komið með gest einn, er
þyrfti mikillar og skjótrar hjálpar, hann hefði liðið mik-
ið og ætti við ósegjanlega erfiðleika að búa, en það mætti
til með að gera eitthvað fyrir hann, ef unt væri, og var
auðheyrt að stjórnandanum var það verulegt áhugamál.
Fundurinn gekk ei að síður eins og venjulega, en
svo virtist sem miðlinum gengi óvenjulega erfitt að vakna
til fulls, auðsætt var að einhverju myndi ólokið. Fundar-
gestirnir gengu nú út úr stofunni, en við, sem erum stöð-
ugir gestir á fundum hennar, sátum eftir. Stjórnandi frú-
arinnar, I. K., lét nú aftur til sín heyra, sagði hann að
þeir mættu til með að gefa gesti einum kost á að nálgast
sambandið, og bað okkur um að vera við komu hans bú-
in og gera alt, sem í okkar valdi stæði, til þess að hjálpa
honum. Hann vék nú brott, örlitla stund var alt hljótt.
Við biðum átekta. Mér varð litið á miðilinn. Mér varð