Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 56
50
MORGUNN
biskupanna hafa orðið til mikils gagns fyrir spíritismann
með því að vekja meiri eftirtekt á honum og fá fleiri til
að rannsaka, sem undantekningarlítið verður til þess, ef
rannsóknin er nokkuð gagngerð, að augu þeirra opnast
fyrir sannleikanum og þeir aðhyllast málið.
En eins og prestarnir í nýja félaginu lýstu yfir, að
þeir kæmu ekki fram í umboði kirkjunnar, eins tóku spíri-
tistarnir, sem að samstarfinu gengu, og frú Clair Stobart
þar fremst, það fram á fundinum, að þeir mæltu ekki fyr-
ir munn allra spíritista, því að það er og kunnugt að þó
að þeir séu allir sammála um aðaláhugamálið, að sanna
framhaldslíf og samband milli heimanna, þá líta þeir ekki
allir sömu augum á samvinnu og samband við kirkjuna.
Vilja sumir halda því sambandi, en aðrir láta spíritism-
ann vera sjálfum sér nógan án kirkjunnar. Eins og þér
vitið hefir fyrri stefnan verið ráðandi hér á landi í félagi
voru. Forsetar vorir voru frá upphafi hlyntir kirkjunni
og unnu henni alls góðs. Þó að forseti vor hafi í röksam-
legri ræðu hér á fundi og í útvarpserindi bent á ýmsar
veikar hliðar kirkjunnar og kennimanna hennar, þá er
síður en svo, að það hafi verið af óvild til hennar. Hitt er
sanni nær, að fáir munu fremur en hann óska henni að
komast sem lengst að sínu háleita markmiði: að vera með
huggunar- og kærleiksboðskap sínum uppspretta og vörð-
ur andlegs lífs 'með þjóðinni. Hefir aðeins sannast á hon-
um þetta gamla að það er vinur, sem til vamms segir.
Þarf ekki í þessu efni að vitna í annað en erindi það, sem
hann hélt í sumar 18. ágúst: Kirkjan og sálarrannsókn-
irnar, og prentað er í Morgni, og sömuleiðis erindi hans
hér hjá oss á síðasta fundi. Um varaforsetann, síra Har.
Níelsson, er oss öllum minnisstætt, hve einlægur og trygg-
ur kirkjunnar maður hann var. En báðum var það sam-
eiginlegt, að vilja láta kirkjuna færa sér í nyt þann stuðn-
ing, sem sálarrannsóknirnar geta veitt henni, með því að
sanna með óvefengjanlegum rökum það sama, sem hún
sjálf vill láta vera sannað með rökum, sem sí og æ hafa