Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 43
MORGUNN
37
hvað hann segir. Farðu svo með konu þína til Brighton,
og þá mun eg vitja ykkar aftur“.
Síra Elliott talaði við biskupinn. Það var biskupinn
í Winchester, formaður dr. Garbetts (þess, sem hefir gert
árás á spíritismann, sem síðar getur), og sagði honum,
hvað hefði gerzt, og bað um ráðlegging hans.
„Þér verðið að gera eins og þér hafið fengið bending
um frá ósýnilegum heimi“, sagði biskupinn og gaf hon-
um blessun kirkjunnar.
Því næst fóru þau til Brighton og leiðtoginn mætti
þeim á stöðinni. Hann fylgdi þeim nær því alla leið að
fiskitjörninni og benti þeim þá á gistihús og sagði: „Fá-
ið ykkur herbergi þarna. Við matborðið í kveld mun sitja
næst ykkur maður og kona hans. Sá maður er skurðlækn-
ir. Eftir máltíðina mun læknirinn standa upp til að ganga
einn inn í viðhafnarstofuna. Enginn annar mun ganga
þangað. Þú skalt fara á eftir honum, taka hann tali og
biðja hann að hjálpa ykkur“.
Alt fór eftir því, sem leiðtoginn hafði fyrir sagt. Við
rnáltíðina sátu karlmaður og kvenmaður við næsta borð.
Eftir máltíðina fór maðurinn einsamall inn í stofuna.
Elliott gekk á eftir honum.
„Mér skilst að þér séuð skurðlæknir", sagði hann.
„Hvernig gátuð þér vitað það?“ spurði hinn maður-
iun. „Eg hefi unnið mig dauðþreyttan og þurfti nú svo
á hvíld að halda, að konan mín og eg fengum okkur
hér herbergi undir fölskum nöfnum, svo við yrðum ekki
fundin".
Elliott sagði honum frá vandkvæðum sínum og um
kveldið rannsakaði hann konu hans. „Alt er í bezta lagi“,
sagði hann. „Eg ímynda mér að barnið fæðist í júní-
uiánuði“.
Því næst spurði hann Elliott aftur að því, hvernig
hann hefði vitað, að hann væri skurðlæknir, og þegar
hann heyrði hvernig í því lá, mælti hann: „Áður en eg
fór frá London kraup eg á kné og bað guð þess að leiða