Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 8
2
MORGUNN
framliðna menn. Þeir telja sig sömuleiðis hafa fengið
óyggjandi vitneskju um það, að kjör framliðinna manna
fari fyrsta sprettinn eftir því lífi, sem þeir hafa lifað
hér á jörðunni, og því hugarfari, sem þeir hafa hér með
sér alið. Sálarrannsóknir og spíritismi eru svo samgró-
in, að þau eru að eins tvær hliðar á sama málefninu.
Sálarrannsóknirnar eru vísindalega hliðin, þekkingar-
hliðin. Spíritisminn er heimspekilega hliðin og trúar-
hliðin. 1 honum eru fólgin þau áhrif á lífsskoðunina,
sem rannsókn fyrirbrigðanna veldur.
Það er ekki við því að búast af skynsömum og
hugsandi mönnum, að jafn óhemjulegar uppgötvanir
eins og þær, sem eg hefi þegar nefnt, verði eins og vatn,.
sem er skvett á gæs, og hafi engin áhrif á það, hverjum
augum menn líta á tilveruna. Þessar uppgötvanir snerta
dýpstu strengi í hugsanalífi mannanna. Menn hljóta
að hugsa á alt annan veg um tilveruna og höfund henn-
ar og stjórnara, þegar numinn er burt allur efi um
framhaldslífið og full vissa fengin fyrir því, að í því
lífi verði öllu réttlæti fullnægt, heldur en þegar þetta
er alt annaðhvort í þokukendri óvissu, eða því er blátt
áfram neitað. Spíritisminn er, eins og eg hefi þegar
sagt, grundvallaður á þeim fyrirbrigðum, sem spiritist-
ar kenna að sanni þetta. Fyrir því verða þeir, sem vilja
veita spiritismanum mótspyrnu, ef nokkurt skynsam-
legt vit á að vera í framkomu þeirra, að beina mót-
spyrnu sinni gegn þessum fyrirbrigðum. Þeir verða
annaðhvort að sanna það, að fyrirbrigðin gerist ekki,
eða þá að þau sanni alls ekki það, sem spiritistar ætla,
því að gera megi grein fyrir þeim öllum með öðrum
hætti. Slík gagnrýni hefir aldrei verið reynd hér á landi,
heldur hefir verið látið við það sitja að hella fyrirlitn-
ingarorðum og háðsyrðum yfir þá, sem telja sig hafa
fengið þessa vitneskju. I sumum öðrum Jöndum hefir
verið lögð stund á þessa gagnrýni. En hún hefir ger-
samlega mistekist. Það hefir ekki reynst nokkur vegur