Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 45
MORGUNN
39
Lodge hefir gert það, þá skal eg ekki hætta fyr en eg hefi
gert hið sama“. Hann var á öllum tegundum af tilrauna-
fundum og kom á tilraunaflokki heima hjá sér. Hann
varð vottur að flestum tegundum af fyrirbrigðum, þar
á meðal sjálfstæðum röddum heima hjá sér, þar sem voru
einungis nánustu vinir hans viðstaddir, og að lyktum
sannfærðist hann um staðreyndir spíritismans.
En þetta var upphafið að vandræðum hans og erfið-
um efnahag. Hann fékk að reyna það, að hann var sett-
ur hjá, þrátt fyrir það að hann hafði frábæra mælsku-
gáfu, og það hafði sýnt sig, að hann fylti kirkjur hvar
sem hann kom.
Hann var fyrst fríkirkjuprestur, áður en hann gekk
í ensku kirkjuna, og jafnvel þá átti hann í erfiðleikum
vegna skoðana sinna.
Árið 1912 var til hans tekið sem eins hins mesta
ræðuskörungs í sérstakri grein um hann í blaðinu
Christian Commonwealth. Blað þetta sagði um hann: Síra
G. Maurice Elliott var neyddur til að segja af sér prests-
embættinu við Marlborough kirkju síðastliðið ár og fyrir
fáum mánuðum neyddist hann sömuleiðis til þess að
hverfa úr ræðustólnum í Castle Street fríkirkju í Berk-
hamsted, og var á báðum stöðum hin frjálslynda guð-
fræði hans hneykslunarhellan.
Stuðningsmenn hans fylgdu honum eftir og mynduðu
nýjan söfnuð. Byrjað var að halda guðsþjónustur í sal,
sem leigður var í því skyni, og innan sex mánaða var
söfnuðurinn orðinn meira en helmingi stærri. Síra Elliott
‘er skörulegur prédikari og sumar áhrifamestu prédik-
anir hans hafa beinzt gegn rangsleitni og ósanngirni í
oútíðar þjóðskipulagi.
Sama sagan endurtók sig, þegar hann gekk í ensku
kirkjuna. Hann hefir orðið 14 sinnum að láta af embætti
a 27 árum. Einu sinni varð hann að hröklast frá kirkj-
unni vegna skoðana sinna. Það var árið 1916, þegar hann
Var aðstoðarprestur í Havant. Hann hafði talað á spíri-