Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 62
56
MORGUNN
ur með návist sinni á umræðufundinum í desember á þess-
um sama stað, fjölluðu um málið af svo grunnfærinni
gagnrýni, að hún var alveg ósamboðin því, sem þeir hafa
afrekað á öðrum sviðum mannlegrar hugsunar, einkum
þó hr. Joad. Hann sagði margt óljóst um framhaldslífið,
en eitt sagði hann mjög greinilega. Honum er nauða-illa
við þá hugsun, að þurfa að halda áfram að vera C. E. M.
Joad eilíflega. Nú getum við haft fulla samúð með hon-
um í þessu efni, en hann gleymir mjög mikilvægu atriði.
Hann hefir verið ungbarnið Joad, litli Joad, ungi Joad og
er nú miðaldra Joad. Hann getur líka, vonandi, orðið
gamli Joad. Eða m. ö. o. — persónuleikur hr. Joads er
altaf að breytast, eins og allir aðrir. Hann hefir, í sömu
merkingu og við öll, 365 ólík „sjálf“ á ári. Og samt helzt
eitthvað óbreytt, — einstaklingseðlið. Hættan á því, að
hr. Joad verði dauð-leiður á sjálfum sér hinumegin, er
ekki eins mikil og hann heldur, því að við vitum, að sam-
kvæmt lögmáli lífsins mun hann öðlast meiri þekkingu,
meira ljós og, að því er eg vona, meiri sveigjanleik í
hugsun ...
Hr. Joad sagði, að andarnir í miðlasambandinu hafi
„ullar-heila“ (það var annars misgáningur, því að sam-
kvæmt skoðun hans hafa þeir alls engan heila), tali hvers-
dagslegt rugl, gefi engar ákveðnar upplýsingar, og að
þegar „frægir“ karlar og konur komi aftur og geri vart
við sig, þá séu þeir auðsjáanlega „hálfvitar“. Þó að and-
arnir kunni að hafa sál, sagði hr. Joad, þá hafa þeir a. m.
k. engan heila.
Eg veit ekki, hvað margar bækur með „anda-skeyt-
um“ hr. Joad hefir lesið, áður en hann sagði þetta, — og
efast um, að þær hafi verið margar. Hefir hann t. d. lesið
hið sígilda rit Spirit Teachings (Anda-kenningar), sem til
varð fyrir miðilsgáfu Stainton Moses? Ef hann hefir les-
ið það og heldur því samt fram, að það sé „loðið“, „óljóst“
og „heimskulegt“, þá kenni eg í brjósti um hann.
Það er fullyrt, að til séu í heiminum nú á dögum h. U-