Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 34
28
MORGUNN
vann þá á skrifstofu hans. Skeytið var á esperantó, en er
þannig í íslenzkri þýðingu:
„Svaf mágur eða fann eitthvað í gær milli klukkan
2 og 3. Svar. Jakob“.
Um 5-leytið sama dag fæ eg svar frá E. P. Briem.
Var það á þessa leið:
„Mágur í algjörum trance við vinnu hálfþrjú til hálf-
fjögur. Betty sagði bróður Heizig Norðfirði. Gunnar svaf
heima. Betty hélt áfram verki Benna meðan. Epébé“.
I þessu svari Briems þóttist eg hafa fengið lausnina
á vandamálinu. Tíminn kom heim og eins fannst okkur
eftirtektavert það, sem sagt var um ferð Þjóðverjans.
Gunnar sá, sem nefndur er í skeytinu, er ungur maður í
Reykjavík, og var mjög góður kraftur á fundum Benja-
míns. Var því ekkert óeðlilegt, að svo framarlega, sem
nokkur sannleikur væri í allri sögunni, hefði hann verið
tekinn til aðstoðar.
Engin ferð féll enn til Reykjavíkur, svo að þeim
fyrir sunnan gat engin vitneskja borist um atburðinn
heima, og er það í eina skiftið, sem eg veit til að sam-
gönguleysið við Austfirði hafi orðið til góðs. En aftur á
móti fæ eg eitt bréf frá Briem, og má með sanni segja, að
það hafi gert mig jafnruglaðan og skeytið var búið að
gera mig öruggan.
Briem lýsti því, sem gerzt hafði á skrifstofu hans.
Benjamín hafði fyrst verið að raða bókum í bunka og
síðan að láta ýms bréf inn í bréfahefti. Þá er hringt í
símann og biður Briem Benjamín að anza, en hann virð-
ist alls ekki heyra það. Fer Briem þá sjálfur í símann
og að því búnu yrðir hann eitthvað á Benjamín viðvíkj-
andi verki því, sem hann var að vinna, en verður heldur
en ekki undrandi, þegar honum er svarað með kven-
mannsrödd og á ensku. Samtalið hélt síðan áfram á því
máli. Kvaðst Betty vera þar komin, en Heizig væri aust-
ur á Norðfirði og hefði tekið Benjamín með sér utan lík-
amans. Hún hefði tekið að sér að raða bréfunum á meðan
J