Morgunn - 01.06.1936, Blaðsíða 55
MORGUNN
49
sem fleiri nálgast málefnið, fer varla hjá að þeir verði
sannleikans vísir og kannist við hann. Það er eins og höf-
undur í nýútkomnu blaði segir. Hann ritar vini sínum,
sem hefir lagt fyrir hann spurningar um spíritismann og
'efast. „Eg vara þig við, ef þú leitar svars við þessum
spurningum og ert fastráðinn að fylgja því, sem svörin
benda til, munt þú enda á því að verða spíritisti".
Því var lýst yfir af prestunum, sem stofnuðu þetta
félag, ag þeir hefðu ekki til þess umboð kirkjunnar eða
gerðu það í hennar nafni. Enda var það og er kunnugt, að
Þótt margir fleiri en þessir félagsprestar aðhyllist málið
'— t. d. fyrir nokkrum árum talið, að allir prestar í Glas-
gow væru því hlyntir —, þá eru enn sem komið er kirkju-
deildirnar í Englandi sem heild fráhverfar spíritisma, þótt
þar sé lengra á veg komið en í flestum eða öllum löndum
öðrum. Það kom líka fljótt í ljós, að þessi nýja félags-
stofnun leiddi til þess, að nú risu upp forustumenn kirkj-
unnar, og þóttust ekki aðgerðalausir mega hjá sitja svo
tilkomumikilli hreyfingu. — Hefir forseti S. R. F. í. í
Morgni skýrt frá, að tveir af helztu biskupum Englands,
biskupinn í London og í Winchester, hafi ráðist á spíri-
tismann og meðal annars bannað að hafa kirkjuhúsin til
slíkra funda. Mótbárur þeirra voru að vísu haldlitlar, en
uægðu aðeins til að sýna óttann við þessa nýju hreyfingu,
a<5 hún mundi grípa um sig, sem heldur ekki er ósenni-
legt. Það voru reyndar fleiri en þessir tveir biskupar, sem
andæfðu. í greininni sagði forseti frá, hvernig prestarnir
1 hinu nýja félagi, bæði ritarinn, síra Elliott, sem eg hefi
verið að tala um í kvöld, og fleiri svöruðu árásum biskup-
nnna, þar á meðal Oliver Lodge, og áttu auðvelt með að
^asra sönnur á, að þær ættu ekki við rök eða þekking á
mahnu að styðjast. En það er það, sem andstæðingunum
Verður oftast á, að þeir láta andúð sína stíla sér mótbár-
urnar, í stað þess að rannsaka fyrst þetta, sem þeir ekki
bekkja, en mundu, ef þeir gerðu það, komast að alt ann-
ari niðurstöðu. Blöð sálarrannsóknarmanna töldu árásir
4