Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 95
MORGUNN
221
verður á þessum skeytum, og þér munuð sjá hve viturlegt
það er, sem sagt hefir verið.
Vér flytjum yður öllum mikla og innilega ástarkveðju
og skiljum vel sorg yðar, þjáningar og þunga reynslu. En
vér sjáum (fram undan) gleði og fögnuð.
Að endingu bætir hann við þessari athugasemd: Engin
skeyti hafa gefið í skyn, að vanrækja mætti, að hafa allan
viðbúnað til þjóðaröryggis. Þvert á móti hafa skeytin
ávallt lagt áherzlu á, að hlýða fyrirskipunum jarðneskra
yfirvalda.
Eftir að framanritað var sett í prentsmiðjunni, hafa
borizt skeyti frá mörgum miðlastjórnendum, sem höfðu
sagt fyrir, að friður mundi haldast, og mikið verið ritað
í enskum sálarrannsóknarblöðum, en flest nokkuð á einn
veg .
Jeg set hjer nokkrar setningar úr skeytum frá Silver
Birch, stjórnanda Haunen Swaffers, blaðamannsins nafn-
kunna, og eins helzta forustumanns spiritisma, síðan
Conan Doyle leið.
Hann segir meðal annars: Ég er glaður að geta talað
við yður, þó að þessi tími sé sorglegur fyrir marga. Sam-
bandið við yðar heim er ekki auðvelt. Mér er ekki unnt
nú að telja upp allt, sem ég undanfarið hef haft fulla
vitund um, og mér hefur tekizt að birta yður að undan-
förnu.
Það er satt, að hræðilegir atburðir hafa gjörzt. Þó veit
ég ekki, hvers vegna sumir vilja skella skuld á okkur, sem
höfum árum saman barizt fyrir að innræta yðar heimi
kærleika, frið og þjónslund við alla. Ég vil tala um það,
sem er efst í huga yðar og leitast við að finna, með hverju
við getum hjálpað yður. Hvernig eigum við að skýra það,
sem yður finnst okkur hafa skjátlazt? — Hef ég ekki
ávallt sagt, að þér ættuð að beita heilbrigðri skynsemi
yðar, að þér ættuð að hafna hverju, sem við segjum og
kemur í bága við hana?