Frjáls verslun - 01.04.2003, Síða 60
FRÉTTASKÝRING IIVIPREGILO
Bendlað við mútur
Eins og fram hefur komið í íslenskum fjölmiðlum hefur Impregilo nokkrum sinnurn
verið bendlað við mútur. í Lesótó í Afríku hefur verið fallið frá ákæru á hendur fyrir-
tækinu fyrir meintar mútugreiðslur upp á 20 milljónir króna til að liðka til fyrir samn-
ingagerð vegna stíflugerðar. í því máli var kanadískt verktakafyrirtæki dæmt til
greiðslu sekta og hefur það áfrýjað dómnum. Alþjóðabankinn fjármagnar stíflu-
gerðina og hefur hann strangar reglur um að fjármagna ekki verkefni sem bendluð eru
við mútur. Ef slíkt sannast fara fyrirtækin á svartan lista hjá bankanum og detta út úr
framkvæmdum. Áður hefur nafn Impregilo verið tengt við mútumál vegna stíflu-
gerðar í Argentínu og Guatemala. í öllum tilvikum hefur fyrirtækið alfarið neitað sök.
fyrirtækið er með. Impregilo verður með vinnubúðir við ganga-
munnana þijá og munu þessar búðir hýsa 90-120 manns. A
hveijum stað verður mötuneyti og öll helsta þjónusta. Við Kára-
hnjúka verður svo einn stór kampur fyrir allt svæðið og mun
hann rúma 600-700 manns. Þarna verður aðstaða fyrir stjórn-
endur með Jjölskyldur og m.a. rekinn grunnskóli, klúbbhús,
læknisþjónusta og fleira.
Italirnir hafa lagt mikla vinnu í að kanna verð, td. bæði á
nýjum og notuðum vinnuvélum og bílum hjá innlendum
umboðum og notuðum tækjum hjá innlendum fyrirtækjum.
Nýlega gerði fyrirtækið samning við ítalska fyrirtækið CGT og
Heklu hf. um að kaupa 63 Caterpillar vinnuvélar og
námutrukka að söluandvirði um 17 milljónir evra, eða um 1,5
milljarðar króna. Af því fær Hekla dágóðan skerf en ekki er
vitað nákvæmlega hver sú upphæð er. Um er að ræða 23
námutrukka, 15 jarðýtur, 8 hjólaskóflur, 7 beltagröfur, 4 veg-
hefla og 6 smærri tæki. Stærstu beltagröfurnar vega um 180
tonn í heildina. Stærstu trukkarnir vega um 100 tonn og bera 60
tonn hver á palli. Tækin koma til landsins á næstunni og mun
Hekla sjá um að þjónusta tækin og selja varahluti og þar er
kannski stærsta tekjulindin. Umfangsmiklum varahlutalager
verður komið fyrir við Kárahnjúka. Þá hefur Impregilo samið
við Esso um kaup á tugmilljónum lítra af gasolíu og smurolíu.
Á færiböndum inn og Út göngin Ljóst er að ítalirnir munu flytja
til landsins mikinn tjölda af alls kyns tækjum, bílum og öðrum
vinnuvélum. Aður hafa verið nefndar borvélarnar sem
Impregilo kemur með hingað til lands. Tvær þeirra eru
glænýjar en ein kemur hingað beint úr endurnýjun og viðhaldi.
Búast má við að til landsins verði fluttir alls kyns vörubílar,
steypubílar, grúsbílar með palli, dráttarbflar fyrir þungaflutn-
inga, viðhaldsbflar, jeppar og svo mætti lengi telja. Þessi tæki
verða síðan ýmist seld að verkinu loknu eða flutt utan aftur og
notuð á vegum fyrirtækisins í önnur verkefni eða sett í sölu í
miðlunarfyrirtæki sem Impregilo á hlut í. Þeir sem til vinnu-
bragða Italanna þekkja telja að þeir muni flylja talsvert af
tækjum inn sjálfir - þannig hefur Fijáls verslun heimild fyrir því
að þeir muni halda áfram viðskiptum sínum við Fiat-sam-
steypuna og kaupa og flytja inn Astra vörubíla frá Ivego, sem
framleiðir einfalda og ódýra bfla, einkum herbfla. Astra-vörubfl-
arnir hafa ekki fengist hér á landi.
Landsvirkjun byggir Kárahnjúkavirkjun, á hana og rekur
og býður út alla verkþætti, en aðeins hefur verið samið um
helming framkvæmdanna kostnaðarlega séð. Undirbúnings-
framkvæmdir hafa átt sér stað við Kárahnjúka að undanförnu.
Arnarfell hefur tekið að sér að bora tvenn göng, 800 metra
löng hvor, fyrir Impregilo til að veita ánni úr farvegi sínum
meðan stíflan er byggð. Þessari vinnu þarf að ljúka í sumar
svo að hægt verði að byija á stíflunni í haust. Otrúlega flókið
og viðamikið verk bíður. Sem dæmi má nefna að Impregilo
hefur áætlanir um að mylja niður jarðefni í rétta kornastærð
en fimm stærðir af kornum þarf í stífluna, um 2.000 rúmmetra
að jafnaði á sólarhring. Italirnir munu brydda upp á ýmsum
nýjungum við vinnuna. Þannig ætla þeir að nota færibönd til
að flytja jarðefni frá borvélunum og út úr göngunum og þarf
því ekki að aka vörubílum um göngin. Hins vegar eru uppi
hugmyndir um að nota færibönd jafnhliða vörubílum við
byggingu stíflunnar en það er ekki frágengið. Færiböndin
eiga að draga úr slysahættu auk þess sem þau þykja
umhverfisvænni.
Harðir í samningaviðræðum Fufltrúar impregilo hafa átt í
samstarfi og viðræðum við marga upp á síðkastið en fyrir-
tækið hefur litla þjónustu keypt innanlands fram að þessu og
fyrst og fremst látið höfuðstöðvarnar á Italíu sjá um vinnuna,
t.d. við áætlana- og tilboðsgerð. Það orð hefur farið af Itöl-
unum að þeir séu einstaklega harðir samningamenn og þykir
Islendingum þarna koma í ljós menningarmunur milli þjóða
Norður- og Suður-Evrópu. Italirnir sýna lítið spilin sín og eru
firnaharðir prúttarar, heyrst hefur að þeir viðhafi ósvífin
vinnubrögð og er ekki laust við að meðal viðmælenda
Frjálsrar verslunar gæti gremju yfir því. Italirnir hafi farið víða
og t.d. fengið fyrirtæki til að afla upplýsinga sem þau hafa og
gert í trausti þess að til viðskipta komi, veitt upplýsingar um
íslenskan vinnumarkað, vinnulöggjöf og kjarasamninga svo
að nokkuð sé nefnt. Þeir hafa jafnvel fengið tilboð að utan
með milligöngu íslenskra aðila en átt svo til að fara framhjá
íslenska samstarfsfyrirtækinu og samið beint við erlenda
fyrirtækið.
Rétt er að taka fram að Frjáls verslun óskaði ítrekað eftir
viðtali við forsvarsmenn Impregilo hér á landi við vinnslu
þessarar greinar en án árangurs.líl
60