Morgunn - 01.12.1971, Side 8
86
MORGUNN
ans menn síns tíma, eins og Göthe, Heine, Balzac og fleiri og
fleiri, sem of langt er upp að telja. Allt, sem vitað er um líf
hans og víðtæk og margbrotin störf, sýnir svo ekki verður um
villzt, að hér hefur verið á ferðinni maður, sem ekki aðeins skar-
aði fram úr á einu sviði, heldur í öllu, er hann sneri sér á annað
borð að. Afrek hans á sviði vísinda, verkfræði, sem og sænskra
þjóðmála, eru bæði rómuð og víðfræg, og eru þessu til staðfestu
frásagnir þjóðfrægra og þektra manna, er lofuðu og dáðu vit
hans og þekingu, einstaka hæfileika og snilli ásamt góðvild
hans, hvar sem hann kom við mál. Liggur og eftir hann ótrú-
legt magn ritverka um hin fjölbreytilegustu efni í vísindum,
verkfræði, jarðfræði, stærðfræði, líffræði, heimspeki og eðlis-
fræði, sem viðurkenningu hafa hlotið fyrir að hafa að geyma
kenningar og uppgötvanir, sem höfðu grundvallarþýðingu, og
voru auk þess langt á undan sinni samtíð. — Kenningar hans
í stjörnufræði og um sköpun sólkerfisins úr stjörnuþoku voru
um 80 árum á undan kenningum heimspekinganna Emanuels
Kant og LaPlace, en eru nú viðurkenndar af seinni tima vis-
indum, sem raunhæfari og fullkomnari en kenningar þessara
vísindamanna, þótt þær áður væru taldar réttari. Þá eru kenn-
ingar hans um undirstöðulögmál efnisins og eðli frumeind-
anna, sem orkuhvirfla, sem er í samræmi við nútíma hug-
myndir; um skildleika segulmagns og rafmagns, sem voru
langt á undan örstedt og Faraday, sem taldir eru feður þeirrar
fræðigreinar; um krystalmyndanir í málmum; um gerð og
starfsemi heilans, mænunnar og jafnvel frumhugmyndir um
innrennsliskirtlakerfi líkamans, og svo mætti lengi telja. En
allt þetta var langt á undan þeim hugmyndum er þá voru uppi.
Sumar eðlisfræðihugmyndir Swedenhorgs voru i sömu átt og
þær, sem Einstein er frægur fyrir og sem jafnvel hugsuðum
nútímans hefur gengið illa að meðtaka, en þetta sýnir áþreif-
anlega hugræna frjóvgi hans og hugmyndaauðgi, ásamt djúp-
tækum skilningshæfileika og innsæi. Kenningar hans og rann-
sóknir um jarðfræði Svíþjóðar vörpuðu algjörlega nýju ljósi á
hina fræðilegu þróun landsins. — Sem námaverkfræðingur