Morgunn - 01.12.1971, Qupperneq 23
OPINBERANIR EMANIJELS SWEDENBORG
101
við Swedenborg og kenningar hans. Þýðingar þær, er Jón A.
Hjaltalín hefur gert heita á íslenzku: Vísdómur Englanna um
Hina GúÖlegu Elsku og Hina Guðlegu Speki, hin fyrsta, Um
Kœrleikann, hin önnur, og Hin Himneska kenning, sú þriðja.
Er vart að efa, að áhrif hafa borizt til kirkjunnar í okkar landi
frá þessum bókum, á fyrri tíma, þótt þær séu löngu uppseldar
nú. — Er skaði, að útgáfunni skuli ekki hafa verið haldið
gangandi eftir að Jóns naut ekki lengur við, og er fullkomin
ástæða til að því máli verði gefinn gaumur nú af öðrum. —
Jón A. Hjaltalín hefur verið hugfanginn af geislandi gáfum
og hrífandi snilli Swedenborgs, sem og ekki er að undra. — 1
formála að þýðingu sinni á Vísdómi Englanna segir hann
meðal annars um Swedenborg: „Hinn fyrra hluta ævi sinnar,
til hálfsextugs, leitaði hann sannleikans með alúð og einlægni,
enda auðnaðist honum að finna hann, a. m. k. þann sannleik,
sem hann var sannfærður um að væri sannleikur. Hann
brauzt gegnum náttúruna; hann byrjaði á að skoða þann sann-
leik, sem náttúran leggur opinn fyrir hin ytri skilningarvit, en
honum tókst einnig að rifa sundur það fortjald, er aðskilur
ytri sannindi frá hinum innri“. — Til frekari áherzlu bætir
Hjaltalín við, að hann hafi eigi aðeins lesið náttúruna niður í
kjölinn, heldur hafi hann komizt út yfir þann þröskuld er
skilm’ á milli þess, sem augun sjá og eyrun heyra, og opnast
sýn til æðri sviða andans; hann hafi opinberað hina dýpstu
leyndardóma og vitneskju um innri rök lífsins og sköpunarinn-
ar, sem aldrei hafi fyxr verið kunngjörð mannkyni. — Fórnar-
lund og óeigingirni Swedenborgs hefur einnig hrifið Jón A.
Hjaltalin, því hann segir hann ekki hafa látið sér nægja að sjá
og skoða hinn andlega heim einn, heldur hafi hann varið öllu
því sem eftir var ævi sinnar til þess að sýna meðbræðrum sín-
um allt það, er hann sjálfur varð áskynja, með hinrnn víðtæku
ritum sínum.
Heillandi kenningar.
Ekki verður komizt hjá að gera um það játningu, hve sterk
áhrif það hefur haft á þann, er þetta ritar, að kynnast kenn-