Morgunn - 01.12.1971, Page 40
118
MORGUNN
rnn vömum. Þegar Ingeborg því barst afrit af ákæru þessari,
þá krafðist hún þess að litið væri á sig sem grunaðan aðila og
hún hlyti viðeigandi meðferð ákæruvaldsins í samræmi við
það. Var það sannfæring hennar, að með þessum hætti gæti
hún hreinsað sig af öllum grun. Henni gafst þá tækifæri til
þess að verja sig. Var hún þess fullviss, að sérhver rannsókn
mundi leiða í ljós, að samband hennar við föðurinn hefði ávallt
verið hið ákjósanlegasta, og að ást hennar á honum væri hafin
yfir allan efa.
Meðan á þessu stóð, hafði tryggingafélag það, sem Dahl
dómari hafði líftryggt sig hjá, krafizt læknisrannsóknar, til
þess að ákveða dauðaorsökina. Læknamir lýstu því yfir, að
hún væri dmkknun, og engin sjáanleg merki um ofbeldi væm
finnanleg.
Að vísu fannst dálítið eymsli á hálsi dómarans, en skýr-
ingin á því var talin vera, að það hefði skapazt annað hvort
þegar hann var dreginn upp úr sjónum, eða þegar verið var
að reyna að lífga hann við. Að vísu töldu sérfræðingamir, að
það hefði til orðið á meðan hann var enn á lífi, en bættu því
við, að þeir teldu það ekki hafa neina þýðingu.
Að rannsókn þessari lokinni, þar sem kölluð voru fyrir mörg
vitni, lýsti tryggingafélagið því yfir, að það teldi hana full-
nægjandi, og greiddi tryggingarféð, 60 þúsund norskar krónur.
Ekki fullnægði þessi niðurstaða þó gagnrýnendum Ingeborg
og sálarrannsóknanna. Fjandsamlegur hópur hélt enn fast við
það, að miðillinn hlyti að hafa vitað um spá sína, þrátt fyrir
það, að allir sem viðstaddir voru á umræddum miðilsfundi,
hafi vitnað og lýst yfir því, að miðillinn hafi sagt spá sína í
svefntransi, og til þess að koma í veg fyrir kvíða hjá Ingeborg
og ótta, hafi henni ekki verið sagt frá henni. Þessir gagnrýn-
endur stöguðust á því, að hún hefði ekki einungis vitað um
spána, heldur beinlínis látið hana rætast með því að myrða
föður sinn. Þetta fólk kom fram með nýjar ákærur á hendur
Ingeborg, og krafðist nýrrar rannsóknar á miklu breiðara
grundvelli en hin fyrri.
Hér verður að geta þess, að frú Dagný Dahl, móðir miðilsins,