Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 48
FRANZISCA GUNNARSDOTTIR:
SJÁLFSKÖNNUN í GEGNUM
DRAUMA
Nýlega kom lil Islands Gerald David Steinberg, rabbíni
frá Kanada, þeirra eiinda að kenna „sjálfskönnun í gegnum
drauma“.
Steinberg fæddist áttunda júní 1935, í Regína, Saskat-
chewan, og ólst upp í gyðinglegri trú. Að loknu B.A.-prófi
i sálfræði ákvað hann að gerast rabbíni, eða gyðinglegur
prestur, enda hafði hann velt fyrir sér andlegum hugarefn-
um frá barnæsku. Hann útskrifaðist rabbini frá Hebrew
Union College — Jewish Institute of Religion í Cincinatti
árið 1965. Honum fannst sig skorta víðsýni umfram það,
er kynni af einungis einum trúarbrögðimi geta veitt, og vildi
þvi leita á vit annarra kenninga og stefna. Þáttur í þeirri
leit varð tveggja ára dvöl á yoga stofnun, Yasodhara Ashram
í Kootenay Bay, British Columbía, Kanada. Forstöðumaður
þar var swami Radha, og auk hinna hefðbundnu yoga-
iðkana var mikil áhersla lögð á drauma, merkingu þeirra og
tilgang.
Þessar draumarannsóknir eða kannanir voru það, sem
Steinberg sóttist sérstaklega eftir, því að hann hafði dálitið
óvenjulega reynslu af sinum eigin draumum. Þegar hann
var um 9-10 ára gamall uppgötvaði hann sér til óblandinnar
ánægju, að hann gat haft stjórn á draumum sínum. Hann
gat ráðið hvert hann fór, hvað hann gerði, og síðast en ekki
sízt hvernig fólk brást við honum. Það var samt ekki fyrr
en seint og síðar meir að hann komst að því, að þannig var