Saga


Saga - 1968, Page 150

Saga - 1968, Page 150
146 RITFREGNIR um allmikla sérfræSi að ræða, en ég fæ ekki séð, að þýðanda hafi orðið teljandi fótaskortur. Á stöku stað gægist erlend tunga milli lína, t. d. á bls. 73: — Gamalt leiðarmerki á Hjaltlandi. — Svo stendur undir mynd af Móseyjarborg. Ekki var hún reist sem leiðarmerki, þótt slík stórvirki nefnist „landmarks" á enska tungu. Vikingar voru metnaðarsjúkir menn að sögn, og bókin sú arna ætlar sér lítt af. Forlagið Tre Tryckare framleiðir skrautbækur í risaupp- lögum og kaupir frægðarmenn til þess að skrifa myndatexta, en þeir geta samt verið breyskir eins og aðrir og kastað höndunum til hlut- anna. Þannig hafa sumir höfundar víkingabókarinnar ekki talið sér skylt að vanda nægilega texta sinn. Bókin hefst á frásögum af því, hvernig víkingar urðu kunnáttusamir skipasmiðir og siglingameistarar. Þá komu kaflar um það, hvernig Norðurlönd byggðust og víkingar hleyptu heimdraganum. Þá er gerð grein fyrir helztu miðstöðvum verzl- unar og menningar á Norðurlöndum á fyrsta skeiði víkingaaldar og vik- ingavirkjum. Þar næst koma kaflar um víkingaferðirnar, landkönnun víkinga, landvinninga þeirra, verzlunar- og ránsferðir. Um allt þetta efni fjallar helmingur bókarinnar, og er mikið í fang færzt og allgóðum árangri náð. Textinn er að vísu oftast grunnskreiður eins og vikinga- skipin voru. Ekki er t. d. gerð alvarleg tilraun að skýra, hver hinn mikli segull var, sem dró víkinga út i heim. Þar er staðhæft, að ein- hvers konar skuggafjöl, sem uppgjafaskipstjóri danskur, Carl Sölver, teiknaði um miðja 20. öld, hafi verið siglingatæki víkinga (bls. 14). Fornleifarnar, sem hann studdist við, er hann teiknaði tækið, gefa litla heimild til slikra ályktana. Þá segir, að rökin standi með og móti því, að Vínlandskortið svonefnda sé gert um 1440. Haraldur Sigurðsson fjallaði allrækilega um þetta kort i síðasta hefti Sögu, og virðist það þar með að mestu úr sögunni um sinn. Þá eru Norðmenn með skækla- tog um Eirík rauða. Þeir telja, að þeir feðgar, Eirikur og Þorvaldur, hafi tekið sér bólfestu á Islandi um 960, þótt það sé tilhæfulaust sam- kvæmt áreiðanlegustu heimildum. Eiríkur Þorvaldsson er sennilega fæddur á Dröngum vestra, en faðir hans hefur komið seint út. Þá eru höfundar víkingabókarinnar að staðsetja Vinland norður í íshafi eða nyrzt á Nýfundnalandi. Það virðist alls ekki vera nein goðgá að trúa því, að menn, sem létu sig ekki muna að sigla yfir Atlantshafið, hafi geta dólað drjúgan spöl suður með strönd ameríska meginlandsins. Biblían bögglast fyrir brjósti höfundar Vínlandskaflans. Þar er þess getið til, að ritari Eiríks sögu hafi viljað sýna þekkingu sína á heilagri ritningu og sögunni um Jósúa, sem sendi njósnara til fyrirheitna lands- ins, og þeir sneru aftur með stóra vínviðarklasa. Ekki þekki ég þessa sögu í þeim biblium, sem tíðkast hér á landi. Jósúa Núnsson sendi að vísu njósnamenn inn í Kanaansland, en þeir komu slyppir til baka. Hins vegar sendi Móse tvo spretthlaupara til þess að kanna íandið, sem var honum fyrirmunað, og þeir komu aftur með þrúgna- klasa úr Eskoldal eða Vínlandi (Mós. IV. 13. kap.). Þá er gert of lítið úr hæfni víkinga til þess að átta sig í dimmviðri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.