Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 55

Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 55
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 55 BörKUr HanSen, ÓlafUr H. JÓHannSSon og SteinUnn Helga lárUSdÓttir heimila og skóla og verkaskiptingu kennara að fengnum tillögum skólastjóra. Stjórnin staðfestir fjárhagsáætlun skólans að fengnum tillögum skólastjóra, ákvarðar fjölda kennslustunda fyrir hvern árgang, gefur sveitarstjórn umsögn um val á stjórnendum og kennurum og umsögn um námskrá skólans (Helgesen, 2000). Gert er ráð fyrir að foreldrar bjóði sig fram til þátttöku í stjórn skóla en þátttaka foreldra er dræm og oft veljast foreldrar á staðnum þar sem kosning fer fram (Helgesen, 2000). Megineinkenni á stjórnun skóla í Danmörku er því að þar skipa fulltrúar foreldra meirihluta í stjórn skólans þótt aðrir þeir sem beinna hagsmuna eiga að gæta eigi einnig sína fulltrúa. Noregur Í Noregi er grunnskólinn rekinn af sveitarfélögum í samræmi við ákvæði laga (Lov om grunnskolen og den vidaregåande opplæringa, 2009). Ríkið setur skólum nám- skrár en sveitarfélagið ber ábyrgð á framkvæmd á rekstri grunnskóla og fær til þess fjárhagsstuðning frá ríkinu sem er í formi rammafjárveitinga. Hverjum grunnskóla stjórnar skólastjóri. Við hvern grunnskóla skal starfa samráðshópur sem hefur rétt til að tjá sig um öll málefni sem varða skólann. Hópurinn er skipaður fulltrúum kennara og annarra starfsmanna, nemenda, foreldra og sveitarstjórnar. Skólastjóri er ritari hópsins en getur einnig verið fulltrúi sveitarstjórnar sé það talið æskilegt. Samráðshópurinn hefur áhrifavald en ekki ákvörðunarvald. Sveitarstjórn getur þó, ef hún svo kýs, framselt hluta af verkefnum sínum til samráðshópsins. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum getur sveitarstjórn falið samráðshópnum stjórn skólans (Helgesen, 2000). Í Noregi einkennist dreifstýring í skólamálum af því að ríkið hefur veitt sveitar- félögum sjálfstjórn um fjármál og rekstur í verulegum mæli. Ákvarðanir um inntak náms eru aftur á móti nánast alfarið á ábyrgð ríkisins. Sveitarfélagið deilir ábyrgð á ýmsum málaflokkum út til hverfastjórna (Helgesen, 2000). Svíþjóð Sveitarfélög í Svíþjóð annast rekstur grunnskólans. Ríkið setur námskrár og innan þeirra er skólum veitt tiltölulega mikið svigrúm til ákvarðana, t.d. um valgreinar og áherslur skólanna (Skollag nr. 1100/1985). Með lagabreytingu árið 1992 var eitt af markmiðunum að veita börnum og foreldrum sem mest frelsi til að velja skóla, annað- hvort einn af þeim skólum sem sveitarfélagið rekur eða „frjálsan skóla“ (s. fristående skola). Með þessari tilhögun er litið á foreldra sem neytendur þjónustu sveitarfélagsins og er gert ráð fyrir að áhugi foreldra á skólagöngu barnanna aukist við það að geta valið skóla. Fjármögnun grunnskólans er með þeim hætti að skólar fá greidda tiltekna lágmarksfjárhæð fyrir hvern nemanda. Þetta leiðir til þess að skólar þurfa að keppa um nemendur að einhverju marki. Val foreldra er talið gefa sveitarstjórnum vísbend- ingar um gæði skólastarfs (Helgesen, 2000). Boðberar þessarar hugmyndafræði telja að líta megi á skóla sem hverjar aðrar stofnanir sem afhendi vörur eða veiti þjónustu á frjálsum markaði. Gert er ráð fyrir að gæði þjónustu aukist með samkeppni neytenda (Henig, 1994). Í þessu tilviki muni foreldrar sem neytendur menntunar fyrir hönd
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.