Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Síða 108
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010108
trú á eigin færni og Hvati t i l námS
Allir nema einn gátu státað af góðum vinahópi sem hafði gert þeim unglingsárin
ánægjulegri. Vinirnir höfðu reynst hver öðrum vel og verið til staðar bæði í skóla og
einkalífi. Námsleg staða vinanna virtist ekki hafa haft neitt að segja um gengi þátttak-
enda í skólanum nema í tilviki eins, sem hvað verst stóð við upphaf skólagöngunnar í
VMA. Góð staða þeirra hafði jákvæð áhrif á hann. Í öllum tilvikum var um eðlilega og
heilbrigða unglinga að ræða, eftir því sem best verður séð, þó að einelti hafi markað
þrjá þeirra þannig að skugga bæri á.
Fram kemur að allir þátttakendurnir voru þeirrar skoðunar að einstakir kennarar
hefðu náð betra sambandi við þá en aðrir og nefndu í sumum tilvikum jafnvel marga.
Undantekningalítið nefna þeir kennara sem hjálpuðu þeim, hvöttu þá áfram, fóru
hæfilega hratt yfir, gerðu að þeirra dómi sanngjarnar kröfur, voru skemmtilegir og
spjölluðu við nemendur.
En jafnvel þó að kennarar virðist hafa staðið sig með prýði og tekist að laða fram
bæði áhuga og hæfileika meðal þátttakenda, í einhverjum greinum að minnsta kosti,
tímabundið, kom það ekki í veg fyrir að sumir hættu í skólanum. Þeir hafa engu að
síður blásið öðrum kapp í kinn og átt þátt í því að viðkomandi misstu ekki móðinn.
Að fá annað tækifæri
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að námsúrræði skólans hafi ekki dugað
til þess að koma í veg fyrir að sex úr hinum tíu manna hópi hættu í skólanum án þess
að ljúka skilgreindum lokaprófum. Einnig kemur fram að þó svo að sitthvað hafi verið
gert til þess að hvetja þá og koma til móts við þarfir þeirra hafi áhugi á námi ekki verið
nægilega mikill til þess að tekist hafi að koma í veg fyrir að þeir gæfu nám upp á bátinn
og héldu út í atvinnulífið.
Hinir fjórir héldu áfram, tveir voru ennþá í skólanum þegar rannsóknin var gerð en
tveir höfðu brautskráðst með góðum árangri. Meðal þessara fjórmenninga er aðeins
einn þátttakandi sem ekki virðist hafa átt við námsörðugleika að stríða á borð við les-
blindu og/eða ofvirkni og athyglisbrest. Það sem sameinar þennan hluta hópsins er
trú á eigin færni og hvati til náms. Þar af eru tveir, sem alltaf hafa haft trú og áhuga.
Hinir tveir voru hins vegar harla vonlitlir þegar þeir hófu skólagöngu í VMA. Í öðru
tilvikinu gerðu mikil hvatning og gott gengi í verklegum greinum og fögum þeim
tengdum gæfumuninn. Í hinu gerði nemandinn hlé á námi sínu en hóf það að nýju við
breyttar aðstæður og eftir að hafa öðlast meiri þroska, fengið áhuga og sett sér mark-
mið. Sá sem verst stóð í upphafi vann stærsta sigurinn.
Fimm þátttakenda hafa hug á að hefja nám í VMA að nýju ef aðstæður leyfa, ýmist
í dagskóla eða fjarnámi. Trú á eigin færni hefur aukist með meiri þroska og margs
konar reynslu af vinnumarkaðinum og lífsins skóla og áhugi á frekara námi er mjög
greinilegur. Aðstæður fólksins eru aftur á móti ekki alltaf nægilega ákjósanlegar til
þess að það geti átt þess kost að fara aftur í skóla á fullorðinsárum.