Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Side 121

Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Side 121
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 121 gUðmUndUr ingi gUðmUndSSon og gUðBJörg linda rafnSdÓttir og félagslegs þroska sem þeir telja mjög mikilvægt. Kennarar þurfa að fylgjast með nýjungum í faggrein sinni og semja kennsluefni sem oft er sniðið að þörfum ólíkra nemenda. Kennarar hafa þannig valkosti til að þróa með sér árangursríka kennslu- hætti í viðleitni sinni til að kveikja áhuga nemenda á námsefninu. Þegar vel tekst til hefur það jákvæð áhrif á þeirra eigin starfsánægju. Þeir hafa einnig töluvert sjálfræði til að velja hentugt námsefni og geta valið um ólíkar leiðir í framsetningu þess. Almennt telja viðmælendur sjálfræði sitt mikið í starfi. Þeir telja jafnframt sjálf- ræðið vera með stærstu kostum kennarastarfsins og einn af grundvallar þáttum starfs- ánægjunnar. Viðmælendur telja brýnt að kennarar hafi frelsi til að móta kennsluhætti og námsefni eins og þeim einum þykir vænlegt til árangurs. Haukur talar um mikið sjálfstæði hvað varðar námsefnið og það er mikill samhljómur með honum og öðrum viðmælendum er hann segir: „[Ég] get alveg mótað það eftir mínu höfði. Hvað ég kenni og hvernig ég geri það og svo framvegis. Og mér finnst það mikill kostur“. Hann er einn margra sem segir það þægilega tilfinningu að vera sjálfstæður í starfi og hann metur það mikils. Eins og flestir viðmælendur telur hann samvinnu kennara ekki mikla en finnst það vera í góðu lagi vegna þess að: Ég vil kenna með mínum hætti, ég vil ekki að það sé verið að skipta sér of mikið af mér ... ég veit, ég er með ákveðna stefnu og ég veit að svona á ég að kenna þetta og gefa af mér og ég er ekki að fá neinn til að segja mér að ég eigi að gera eitthvað svona eða hinsegin, hver kennari verður að finna sinn stíl, því að eins og ég sagði áðan, ég lít á kennsluna sem ákveðna listgrein og hver listamaður hefur sinn stíl. Eftirlit með starfi kennarans innan kennslustofunnar virðist lítið, flestir viðmælenda virtust ekki eiga mikið samstarf við aðra kennara og þeir kunna flestir vel að meta það svigrúm sem þeir hafa til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um val á leiðum og aðferðum í kennslu sinni. Endurgjöf og viðurkenningu segjast þeir að mestu fá jafnóðum yfir veturinn þegar náminu fleygir fram. Þó kom fram að sjálfræðið jaðrar stundum við skort á stuðningi, og það getur vissulega verið slæmt þar sem ábyrgð þeirra er mikil, bæði fagleg og félagsleg. Viðurkenning og umbun fyrir að ná árangri er mikilvægur þáttur í starfsánægju kennara. Það vekur athygli að viður kenning til kennara virðist aðallega koma frá nemendum. Kenn ar ar fá stundum jákvæða endurgjöf frá nemendum í kennslustund og sumir þakka kenn urum vel unnin störf að námi loknu. Að mati margra kennara eru bæði nemendur og stjórnendur sparir á hrós. Stjórnendur fylgjast lítið með starfi kennarans innan veggja kennslustofunnar og viðurkenning þeirra á störfum kennara er oft byggð á umsögn þriðja aðila. Sif finnst það bæði gott og slæmt að skóla- stjórnendur fylgist ekki með því sem fram fer innan veggja kennslustofunnar. Hún segir: „Mér finnst þægilegt að enginn er að fylgjast með mér en um leið væri gott að fá „fídbakkið“. En í mínu tilviki þá finn ég enga sérstaka þörf fyrir það, ég finn það alveg sjálf hvernig þetta gengur en mér finnst auðvitað að faglega séð ættu einhverjir aðrir að vita það líka“.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.