Ný saga - 01.01.1989, Qupperneq 32

Ný saga - 01.01.1989, Qupperneq 32
AF 3ÓKUM Markmiðið varð aðallega að fá krökkunum tvennt: nógu mikið til að hugsa um og sæmileg- an góðan texta að lesa. þessi verk. - Ekki svo að skilja að nokkur maður segi mér að það sé ekki hlutverk mitt; pró- fessor er látinn í friði í lengstu lög. En skýlausa viðurkenningu á mínum skilningi á hlutverki háskólakennara hef ég ekki fengið, og ég finn mikið vanmat á þessum verkum hjá vinnufé- lögum mínum. Einu sinni reyndi ég að sannfæra félaga minn í annarri fræðigrein um að ég væri að vinna merkilegt starf og samboðið háskóla- kennara. Ég er að gefa þjóðinni sögu, sagði ég, skrifa fyrir stærri vettvang en metsöluhöfundar skáldrita, ég fæ kannski fjögur þúsund lesendur á ári, ár eftir ár. Mínar bækur koma til með að ráða mestu um hugmyndir almennings um eigin sögu. Já, sagði hann, það er alveg rétt. En heldurðu að það komi ekki ein- hvern tímann að því að þú getir farið að skrifa eitthvað af viti? MARKMIÐ OG LEIÐIR Hvaða markmið hefur þú sett þér við ritun bókanna? Það hefur nú verið talsvert misjafnt reyndar. Þegar ég byrj- aði að skrifa fyrir börn ætlaði ég mér eiginlega ekkert annað en að búa til eitthvað sem börn- in ættu auðveldara með að skilja en bækurnar sem þá voru í notkun í 11 ára bekknum sem dóttir mín var í það árið. Svo þróaðist þetta smám saman yfir í býsna ólíkt verk. Markmiðið varð aðallega að fá krökkunum tvennt: nógu mikið til að hugsa um og sæmilegan góðan texta að lesa. Svo reynist sagan bjóða upp á ýmislegt sem ég hafði aldrei hugsað út í fyrirfram. Ég get nefnt ykkur dæmi: þegar ég rakti framfarasögu okkar ís- Iendinga til nútímans, í þriðja heftinu af Sjálfstæði íslendinga, þá reyndist upplagt að enda á eins konar niðurstöðukafla um það hvernig við höfum orðið auðug og svo tæknivædd að við verðum að takmarka fram- leiðslu, bæði í sjávarútvegi og landbúnaði. Þá kemur eins og af sjálfu sér að bera okkur sam- an við snauðar þjóðir og leggja fram til umhugsunar spurning- una um hvort það er rétt að sumar þjóðir svamli í auði með- an aðrar þola skort. Þannig fór með þessa bók sem stefndi á vissan hátt að því að byggja upp eðlilega þjóðrækni meðal les- enda sinna, að hún endaði á að reyna að snúa þjóðrækninni upp í ábyrga alþjóðarækni. Ég hef tröllatrú á því að láta söguna vinna þannig með manni og setja sér ekki öll markmið áður en kemur í ljós hvað hún vill segja. Sagan er í eðli sínu lær- dómsrík ef maður hlustar á það sem hún vill segja. Fyrstu áformin um Uppruna nútímans voru aftur nýstárlegri. Fyrst datt mér í hug að búa til námsefni til að kenna nánast eingöngu fræðilegar aðferðir og vinnubrögð, og vekja áhuga á sögu. Þá staðnæmdist ég við deilurnar í Lærða skólanum í Reykjavík á árunum á milli 1880 og 1890, og hugsaði mér jafnvel að búa til misserislangt náms- efni um þær. Svo smábreyttist þetta, og löngu áður en við Bragi byrjuðum að skrifa bók- ina var orðin til áætlun um yfir- litsrit um íslandssöguna síðan á 19- öld. En inngangskafli Upp- runans, um Pereatið í Lærða skólanum veturinn 1850 er það sem stendur eftir af upphafleg- um hugmyndum mínum. Ég held núna að hann sé það eina sem var nothæft af þeim og vona að hann komi einhverjum að því gagni sem honum var ætlað, að laða þá að sögunni. IIvemig hafa viðhorf þín breyst eftir því sem þú hefur skrifaðfleiri bcekur? - Það er til dœmis verulegur ?nunur á Ufþruna nútímans og Sam- bandi við miðaldir. Sá munur stafar aðallega af því að þetta eru tvær bækur ætl- aðar sömu nemendum, og mér fannst óþarfi að vera alltaf að kenna þeim sömu hlutina. Upp- runi nútímans er mikið hugsuð sem fyrsta sögunámsbók fólks eftir að það er komið til fulls vitsmunaþroska. Þar er lögð áhersla á að kenna grunnhug- tök í stjórnmálum og efnahags- málum, það sem allir ábyrgir þegnar í lýðræðisþjóðfélagi þurfa helst að vita. Margt af því hefur verið venja að kenna und- ir heitinu félagsfræði í skólum, en ég held að það lærist betur ef það er tengt við sögulegan raunveruleika. Samband við miðaldir er aftur á móti sprottin upp úr hugmyndum kennara um að það væri rétt að kenna einhvers staðar í framhaldsskól- um frumatriði sagnfræðilegra aðferða. Ég hef mikla vantrú á að slíta kennslu í aðferð frá kennslu í efni (þótt við neyð- umst til að gera það í Háskólan- um). Þess vegna fór ég út í að skipuleggja bók sem samþætti þetta tvennt og sýndi hvernig ís- lensk miðaldasaga væri búin til úr heimildum. Sú áætlun hefur svo smám saman orðið að Sambandi við miðaldir. Jú, viðhorf mín hafa breyst, mest meðan ég var að vinna við fyrsta heftið af Sjálfstæði íslend- inga, já og við fyrstu gerðina af Uppruna nútímans líka. Ég fór af stað með oftrú á að það sem gilti væri að segja skýrt frá og útskýra nógu vel. Svo lærði ég aðallega tvennt af tilraunakenn- urunum mínum og meðhöf- undi. Annað var það að sumar hugsanir geta börn ekki tileink- að sér, hversu vel sem þær eru útskýrðar, alveg eins og sá frægi kennslufræðingur Piaget hélt fram. Hitt var það að það þýðir lítið að útskýra fyrir fólki, jafnt börnum sem fullorðnum, hluti sem það sér enga ástæðu til að 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.