Ný saga - 01.01.1989, Side 39

Ný saga - 01.01.1989, Side 39
BARNSFEÐRANIR OG EIÐATÖKUR Á 17. ÖLD nafni. Þar fullyrðir hann að dag- lega neiti lauslátar og forhertar konur að segja hverjir séu feður barna þeirra. Það geri þær til að leyna sifjaspjöllum. Þess vegna hafi hann ákveðið að dugi ekki áminningar prests af predikun- arstóli þrjá sunnudaga í röð skuli sýslumaður kalla saman sóknarprest, prófast og sex skynsama menn til að vera við þegar konan sé yfirheyrð og pyntuð með fingurklemmu.15 íslenskir valdsmenn veigruðu sér við að nota þessa aðferð á Þórdísi og til þess að framfylgja bréfinu sendi Daa umboðs- mann sinn Jörgen Daníelsson til Skagafjarðar haustið 1614. Hann boðaði þing á Vallnalaug og þangað komu helstu menn, meðal annarra Guðbrandur biskup ogjón lögmaður. Jörgen bað þá hvetja Þórdísi til að segja satt, en hún þóttist enn ekki vita hver ætti barnið. Hann tilkynnti henni að ef ekki vildi betur yrði hún pyntuð til sagna, því hún væri engin María mey. Þórdís spurði þá hvað hann vildi að hún segði. „Sannleikann" svar- aði Jörgen, því heyrst hefði að Tómas mágur hennar ætti barnið. Hún neitaði því, en gugnaði þegar lienni var sýnd fingurklemman og sagði að hefði nokkur átt við sig væri það Tómas. Því neitaði hann og tókst að flýja af þingi. Þórdís tók þá játningu sína aftur. Enn tregðuðust íslensk yfirvöld við og sögðu að það væri andstætt Stóradómi og gengi þvert á önnur lög konungs að pynta fólk til sagna. Þess vegna væri ekki hægt að dæma Þórdísi til dauða. Ef til vill hefði Þórdís lifað til hárrar elli, hefði Herluf Daa ekki gegnt embætti sínu það illa að vorið 1618 ákvað konungur að senda hingað umboðsdóm- ara sína, Friðrik Friis og Jörgen Vind, til að dæma í málum sem Daa þótti hafa spillt eða klúðrað. Meðal þeirra var mál Þórdísar. Friis og Vind ávíttu Daa fyrir bréfið frá 1612, því þar hefði hann farið inn á valdsvið Neitaði kona að segja til faðernis átti sóknar- prestur að áminna hana þrisvar að segja sannleikann. Líklega er Þórdís Halldórsdóttir eini Islendingurinn sem hefur verið hótað meðfingurklemmu eða þumalskrúfu. Hérsést hvernig þær litu úr og hvernig þumalfingrunum var komið fyrir. konungs. Einnig voru þeir sam- mála áliti íslenskra yfirvalda að bréfið bryti í bága við Stóra- dóm. Engu að síður tóku þeir játningu Þórdísar gilda og dæmdu hana til dauða á alþingi 30. júní 1618. Björn á Skarðsá segir í annál sínum að þar hafi henni verið drekkt.16 Tilraun Herlufs Daa til að auðvelda sýslumönnum það verk að neyða konur til að feðra börn sín fór út um þúfur. í málsvörn sinni haustið 1618 sagðist hann ekki hafa átt þess kost að fá konungsbréf vegna ófriðar í Norðurálfu og ítrekaði þá skoðun sína að brýna nauð- syn bæri til að stemma stigu við því að konur kæmust upp með að feðra ekki börn sín.17 Ætla má að orð hans hafi orðið til- efni þess að 16. desember 1625 var gefið út konungsbréf um konur sem ekki vildu feðra börn sín. Enn var fullyrt að kon- ur neituðu einkum að feðra börn sem getin væru í sifja- spjöllum. Til þess að koma í veg fyrir slíka glæpi var embættis- mönnum konungs skipað að yfirheyra vandlega þær konur sem neituðu að nefna feður, en flytja þær til Kaupmannahafnar til viðeigandi refsingar segðu þær ekki neitt.18 Kristján konungur fjórði var að heiman þegar konungsbréf- ið var gefið út og sonur hans Kristján skrifaði undir. Fyrir vikið var bréfið kallað „prinsins bréf' hér á landi þá rúmu öld sem það taldist gilda. Það var lesið upp á alþingi 1626 og fyrst dæmt eftir því árið 1633. Þá ákváðu lögmenn og lögréttumenn að kona úr Rang- árvallasýslu sem ekki sagðist vita liver væri barnsfaðir henn- ar skyldi flutt til Bessastaða. Höfuðsmanni var falið að skera úr um það hvort hún yrði send utan. Ólafur Lárusson telur að í þessu tilviki hafi prinsins bréfi 37
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.