Ný saga - 01.01.1989, Page 45

Ný saga - 01.01.1989, Page 45
BARNSFEÐRANIR OG EIÐATÖKUR Á 17. ÖLD menn að Laugarbrekku dóminn frá 1627. Þá liafði Peder Peder- sen kaupmaður við Búðir svar- ið fyrir faðernislýsingu Guð- rúnar Jónsdóttur. Hún var „þrá- lega aðspurð og tilkrafin af yfir- valdinu og dómsmönnum," en stóð við lýsinguna. Því var dæmt „í Guðs nafni Amen að heilags anda náð með oss til- kallaðri" að Guðrún skyldi hýð- ast á hverju ári „þar til önnur leiðrétting verður á hennar máli eftir þeirri náð og vægð sem yfirvaldið vill henni sýna fyrir hennar veikleika sakir sem auðsýnilegur er.“ Veikleikinn var að Guðrún hafði verið sködduð á hægri hendi og vinstra fæti frá sjö ára aldri. Það breytti því ekki að 25 septem- ber 1666 var hún hýdd á Arnar- stapa, að öllum líkindum í ann- að skipti eftir dóminn. Síðan fer engum sögurn af ltenni. Guð- rún Ólafsdóttir var tvívegis dæmd til hýðingar, fyrst á al- þingi 1682 eftir að Eyjólfur Jónsson synjaði með eiði og aft- ur tveimur árum síðar þegar Arngrímur Jónsson hafði svarið fyrir sama barn. Gróu Þórðar- dóttur átti að hýða á alþingi 1694 „svo þar með mætti reynt verða hvort hún ennþá ekki lag- færast vildi til sannleikans viðurkenningar."49 Sýslumenn voru ekki einir um að krefja konur svara. Prest- ar gerðu það líka því sáluhjálp þessara kvenna var í veði. Á 17. öld gekk fólk til skrifta og heil- agrar kvöldmáltíðar að minnsta kosti einu sinni á ári. Það fengu þó aðeins þeir sem voru taldir hafa hreina samvisku. Prestar áttu að meta siðferði sóknar- barna sinna og gátu bannað þeim sem ekki þóttu hegða sér nógu vel að ganga til altaris. Það hét að setja fólk út af sakrament- inu og virðist fólk hafa tekið það afar nærri sér. Sumir gátu bætt ráð sitt með syndajátningu fyrir presti, en einstaklingar sem urðu uppvísir að afbrotum fengu ekki sakramenti á nýjan leik fyrr en þeir gengust undir opinbera aflausn í kirkju. Opin- ber aflausn fór fram að söfnuði áheyrandi og þótti meiri niður- læging en að greiða sekt. Konur sem ekki höfðu feðrað börn sín voru í þessum hópi. Prestar veittu þeim ekki aflausn og sakramenti fyrr en þær auglýstu faðernið og faðirinn gekkst við barninu. Þetta kemur skýrt fram í prestadómi að Esjubergi 17. maí 1632. Kvæntur maður hafði svarið fyrir lýsingu Guðríðar Pálsdóttur, en hún vildi engu breyta. Dæmt var „að aflausn og sakramenti skuli henni ekki veitast, hvorki heilbrigðri né sjúkri, so lengi sem hún stend- ur á sínum sama framburði." Vísað var til tveggja greina í Matteusarguðspjalli: að ekki megi „offra gáfu“ við altari nema menn séu sáttir (5.23-24) og að „ef þinn bróðir syndgar á móti þér“ og vill ekki sættast beri að líta á hann eins og heið- ingja (18.15-18). Dómurinn var jafnframt byggður á Kirkjuskip- an Kristjáns fjórða frá 1607, sem var leidd í lög á íslandi 1622, og nýrri skipan hans frá 1629 sem aldrei var lögleidd hér á landi. Sóknarpresti Guðríðar var gert að áminna hana, fyrst á laun, þá að viðstöddum tveimur eða þremur vottum, loks af predik- unarstóli í áheyrn safnaðar. Sýndi hún þrjósku og vildi ekki „annað meðkenna en hún hefur hingað til dags sagt |iá skal hann lýsa fyrir henni til banns í þrjá sunnudaga... Standi hún þá enn á sama þá skal hann þar eftir í tækilegan tíma hana bannfæra af predikunarstólnum." Ekki mátti einu sinni veita Guðríði sakramenti þó hún veiktist „nema því aðeins hún aðra meðkenning gjöri heldur en hún liingað til sagt hefur.“ Þess- ar aðgerðir prests áttu að hefj- ast ef hún breytti ekki fram- burði sínum „þegar það verald- lega yfirvaldið hefur lagt á lík- amlega refsingu eftir skyldu síns embættis.“ Aftan við dóm- inn er skráður vitnisburður prests frá 13. nóvember 1632. Guðríður stóð enn við lýsingu sína, áminnt í viðurvist tveggja karla.50 Afstaða kirkjunnar manna breyttist ekki á síðari helmingi aldarinnar, en dæmum fjölgar. Vandinn þótti örðugur, sem sést á því að á Flugumýri í júní 1683 voru prestar ráðalausir þegar Gísli biskup Þorláksson bað þá álits „um viðhöndlan uppá aflausn og sakramentis meðtekning kvenpersóna er þá feður að börnum sínum lýst hafa er sig með eiði frá þeirra faðernis lýsingu fríað hafa, en þær samt við sinn framburð standa.“ Prestar fundu ekkert „ljóst lögmál" og vísuðu málinu til „lénsherrans."51 Biskup hvatti yfirvöld tilað fara varlega með að leyfa mönnum að sverja af sér börnin, en ekki verkið. MILDARI VIÐHORI Þetta strið um feðrun barna stóð alla öldina. Yrði karlmanni eiðfall og hann þrætti fyrir þrátt fyrir það gat svo farið að hið •^iíúr nfír TiioanfboYtli . tív f * % íVl ftt*)*u c) nuiti ttifí ■í &«/Jr Wflii ffl kW»l«iia3fl vm fe tnaií y*S „ 4 ietoíuíí ciaý-'Biavn.W/Swní. pfaotfijr- — r.....k *•**• £tn 1« tnw IjjSi *■ —^ |*-jr " uítwiy f r«fl i ífltuttlw feiínyv. é\-nú Eiður Guðrúnar Björnsdóttur á Þjóðólfshaga í Rangárvallasýslu 6.maí 1600 um að enginn annar en Símon Helgason eigi dóttur hennar Ingibjörgu. 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.