Ný saga - 01.01.1989, Page 55
starfa sjálfstætt. Hér eru enn-
fremur ýmsir listamenn svo
sem rithöfundar, einnig ritstjór-
ar og barnakennarar.
3. Kaupmenn, stórútgerðar-
menn og forstjórar.
4. Verslunar- og skrifstofu-
menn, einnig veitingamenn.
5. Iðnaðarmenn.
6. Sjómenn og verkamenn.
7. Bændur. Þessi flokkur
kann að orka tvímælis í þeirri
könnun sem hér er gerð því að
mikil stéttarmunur er í bænda-
stéttinni sjálfri. Langt bil getur
verið á milli stórbænda og kot-
bænda. Þannig voru þrír af
embættismönnum 1870 tengda-
synir bænda, þar af tveir, Jón og
Pétur Péturssynir, kvæntir dætr-
um Boga Benediktssonar á
Staðarfelli sem hefur líklega
verið einn ríkasti maður lands-
ins á sinni tíð og af gamalli
höfðingjaætt.
Urn niðurstöður er það að
segja að marktækur munur er á
háembættismannastéttinni 1870
og 1910 og sýnir hann vissa
þjóðfélagsbreytingu á þessu
árabili. í stuttu máli má segja að
embættismennirnir 1870 séu
mun einlitari hópur en fjörutíu
árum síðar. Þeir eru yfirleitt
synir og tengdasynir embættis-
manna og sömuleiðis feta börn
þeirra í slóð feðra sinna. Kvon-
fang sitt sækja börn þeirra til
embættismanna og kaupmanna
í tveimur af hverjum þremur til-
vikunt. Árið 1910 var það orðið
mun algengara að embættis-
menn kæntu úr bænda- eða
jafnvel tómthúsmannastétt.
Kvonfang sitt sóttu þessir menn
hins vegar oft til yfirstéttarinnar
og staðfestu þannig að þeir
hefðu færst upp í þjóðfélags-
stiganum. Synir og tengdasynir
háembættismanna fóru líka
mun fjölbreyttari slóðir í starfs-
vali en 1870 og sýnir það bæði
að gamla stéttaþjóðfélagið var á
undanhaldi og einnig að sam-
félagið var orðið margþættara
en áður var og fleiri störf stóðu
til boða.
Ef litið er svo á að embættis-
menn, menntamenn og kaup-
menn teljist til yfirstéttar má
lesa út úr súluritum og töflum
að feður háembættismanna
árið 1870 voru um 86% úr þess-
urn stéttum en sambærilegar
tölur árið 1910 eru aðeins um
54%. Ef litið er á tengdafeður
háembættismannanna voru um
79% þeirra úr þessum stéttum
árið 1870 en fjörutíu árum síðar
69%. Um 89% sona háembætt-
ismanna árið 1870 lentu í yfir-
stéttunum og sama hlutfall
tengdasona. Um 73% sona há-
embættismanna 1910 höfnuðu
hins vegar í þessum stéttum en
81% tengdasona. Hvað viðvíkur
tengdafeðrum barna há-
embættismanna tillieyrðu um
71% þeirra yfirstéttum 1870 en
hlutfallið er komið niður í 54%
fjörutíu árum síðar.
Verður ekki orðlengt um
þetta frekar hér en súlurit og
töflur segja það sem segja þarf.
Árið 1910 var það
orðið mun algengara
að embættismenn
kæmu úr bænda- eða
jafnvel tómt-
húsmannastétt.
1
Lækjartorg um 1910.
53