Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Side 31

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Side 31
LONGFELLOW OG NORRÆNAR BÓKMENTIR 13 völl bókmenta- og tungumálaþekk- ingar, sem hann hafði lagt með Norðurálfudvöl sinni. Eins og bent hefir verið á, gat heldur eigi hjá því farið, að maður jafn háróman- tískur og Longfellow var, gæfi gaum norrænum áhrifum í þeirri bókmentastefnu hinnar 19. aldar. Kom þar því að vonum áður langt leið, að hann ákvað að ferðast til Svíþjóðar og Danmerkur til þess að kynnast Norðurlöndum af eigin sjón og reynd. Og þegar hann, eins og fyrr getur, fór til Norðurálfu til undirbúnings háskólakenslunni í Harvard, dvaldi hann í Svíþjóð og Danmörku sumarið 1835. Var kona hans í för með honum, ásamt tveim vinkonum þeirra hjóna. Lagði ferðafólk þetta af stað frá Englandi, um Kaupmannahöfn, á- leiðis til Svíþjóðar 16. júní, en svo gekk ferðalagið seint og erfiðlega, að til Stokkholms var eigi komið fyrr en 28. júní. Hugði Longfellow nú gott til sumardvalarinnar á Norðurlöndum, en það fór þó með ýmsum hætti á annan veg, því að margvísleg vonbrigði biðu hans þar, °g það fyrst, að góðvinur hans Nicander skáld, sem hann hafði eigi tilkynt komu sína, var alveg nýfarinn úr borginni, en bréf fóru milli þeirra vinanna, og það bætti úr skák, að Longfellow kyntist í Stokkholmi ýmsum fræðimönnum °g rithöfundum, sem gerðu honum úvölina þar bæði ánægjulegri og nytjaríkari, meðal þeirra var Karl Lignell, prófessor í nýjum málum við Uppsala-háskóla, sem dvaldi í höfuðborginni í sumarfríi sínu, og kendi hann Longfellow sænsku, en íramburð í finnsku lærði hann hjá Gustaf Mellin skáldsagnahöfundi, sem einnig er talið að dregið hafi athygli hans að hinu finnska hetju- kvæði Kalevala, og síðar mun frek- ar vikið að. Kappsamlega aflaði Longfellow sér einnig eftir föngum bókmentalegrar og málfræðilegrar fræðslu á sænskum bókasöfnum, bæði á Konunglega bókasafninu í Stokkholmi og háskólabókasafn- inu í Uppsölum, en þar átti hann nokkurra daga dvöl, og var honum heimsóknin á það sögufræga mentasetur um margt bæði skemti- leg og fræðandi. Hann keypti einn- ig margt rita bæði fyrir sjálfan sig og bókasafn Harvard-háskóla. Eftir tveggja mánaða dvöl í Stokkholmi lagði Longfellow og föruneyti hans seint í ágúst af stað með skipi um Gauta-skipaskurðinn til Gautaborgar á leið til Kaup- mannahafnar, og var skáldinu augna yndi að hinu sænska sveitalandslagi með hinum mörgu miðaldaminjum, gömlum kirkjum og kastalarústum, sem gat að líta á leiðinni, og þá eigi síður hugþekkt að ferðast yfir fög- ur stórvötnin á þeim slóðum. í Gautaborg var vikubið eftir skips- ferð, svo að liðið var fram í septem- ber, þegar til Kaupmannahafnar kom. En þó að dvölin í Svíþjóð hefði að ýmsu leyti orðið Longfellow vonbrigði, varð hún honum til langframa ávaxtarík á margan hátt, fyrst og fremst vegna þess, að hann lærði sænska tungu til fullra nota, kyntist einnig að nokkru sænskum bókmentum, og tengdist Norður- löndum fastari böndum. Þegar frá leið, eins og ritgerðir hans og skáld rit sýna deginum ljósar, sveipaðist Svíþjóð einnig í minningu hans
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.