Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Blaðsíða 123
ÞINGTÍÐINDI
105
Mountain skólinn byrjaSi um þaö leyti,
undir umsjón frú H. Olafson, nemendur
voru um þrjátíu, og sex kennarar mest af
tímanum. Bn þvl miiSur varð að hœtta við
skólann I ágúst, þvi Polio-veikin kom, og
læknar bönnuðu alla skóla og samkomur.
Fjórar skemtisamkomur voru haföar á
árinu, tvær 4 Monutain, ein á Garðar og
sú síðasta í Cavalier. Það var auðvitað
besta samkoman, því þar skemtu þessir
snillingar: Karlakór Reykjavikur, og þeirri
stund verður ekki með orðum lýst, hvaða
ánægju við höfðum af komu þeirra.
Samkomurnar voru allar góðar og vel
sóttar. Á þessu síðastliðna ári hafa tveir
meðlimir deildarinnar dáið, Sveinn John-
son og Ingi Pálson. Minnumst við þeirra
með virðingu. •—- Meðlimatala deildarinn-
ar I árslok var 126.
Ágóði á árinu ..................... $356.78
1 sjóði 1. jan. 1946 .............. 175.48
Samtals I sjóði 1. jan. 1947 $532.26
I núverandi stjórnarnefnd eru þessir:
R. H. Ragnar forseti, séra E. H. Páfnis
vara-forseti, H. B. Grlmson ritari, K.
Kristjánsson vara-ritari, C. Indriðason fé-
birðir, B. Stefánson vara-féhirðir, Steve
Indriðason f jármálaritari, Crist Guð-
mundson vara-fjármálaritari, Haraldur
Olafson skjalavörður. — Tfirskoðunar-
menn eru G. J. Jónason og Haraldur
Olslason.
Gardar, N.-Dak., 22. febr. 1947.
K. Kristjánsson, ritari.
Skýrsla deildarinnar “Grund” I Argyle-
bygð lesin. — Skýrslan viðtekin eftir uppá-
stungu ritara, sem Magnús Gislason
studdi. — þingskjal no. 20. —
Deilclin Grund í Argyle-bygð 1846
Það mun mikið spursmál um það, hvort
ðeildin Grund I Argyle-bygð hefir nokkurn
’-ilverurétt þegar litið er yfir starfið síðast-
bðið ár, og I raun og veru hefir hún það,
ekki nema ef vera skyldi fyrir það, að hjá
hokkrum mun vera sterkur ásetningur að
Sjöra meir I framtíðinni.
Slðastliðið ár hefir verið mikið annrlkis-
ár. og lítill timi að sumrinu til að sinna
féiagsmálum, en aftur að vetrum, sérstak-
leSa þegar snjóþyngsli eru mikil eins og
'erið hefir undanfarna tvo vetur, er þvl
eem næst ókleyft að fá fólk saman um svo
stórt svæði, sem um er að ræða. Sérstak-
eea þar sem þjóðræknis-áhuginn er nú
ekki eldheitur nema hjá einetöku mönn-
um eins og mun vera tilfellið meðal Is-
lendinga vlðsvegar.
Deildin hafði aðeins einn fund á árinu.
Var hann ekki fjölsóttur, en mátti heita
ágætur fundur. Auk almennra fundarmála.
flutti G. S. Johnson erindi, Th. Sveinsson
fór með íslensk kvæði. Sömuleiðis hafði
J. A. Sveinson yfir nokkur Isl. ljóð. G. J.
Oleson flutti stutt erindi um þjóðrækni.
Mælti fram nokkra ísl. málshætti og
smellnar visur, og fór um hvorttveggja
nokkrum orðum.
Ákveðið var að halda samkomu með
vorinu og fá aðkomandi áhrifamikinn
ræðumann til uppbyggingar og skemtunar.
Bygð okkar á marga heilsteypta þjóð-
ræknis sinnaða menn og konur, en skortir
áhrifamikla leiðtoga. Við erum flestir
eteyptir I sama mótinu, til þess að kveikja
bjarta þjóðrækniselda, eða jafnvel hvaða
bjarta elda sem er, þarf afburðamenn.
Margir lesa enn mikið af íslensku, bæði
blöð og bækur, en kaup á ísl. bókum fer
þverrandi með hverju ári, þó mun okkar
bygð eins islenek og flestar bygðir.
íslensku kensla fór fram I Baldur s. I.
ár I smáum stíl. Má eins vel kannast við
það að sá dagur er liðinn hjá sem elíkt
eða tilraun við slíkt getur komið að miklu
haldi. Fyrir ýmsar ástæður er ókleyft að
vinna nokkuð að gagni á þvl sviði. Áhugi
fólks er lltill og mjög erfitt að fá kennara.
Memlimir deildarinnar vilja af fremsta
megni styðja þjóðræknisstarfið, heilbrigt
og heilsteypt, og styrkja og viðhalda þvl
góða og listræna I íslenskum menningar-
erfðum.
Deildin gaf á árinu $25.00 I Agnesar
Sigurðssonar-sjóðinn.
Dagsett að Glenboro, Manitoba,
22. febrúar 1947.
G. J. Oleson, ritari.
Var þá lesið nefndarálit þingnefndar-
innar I útbreiðslumálum. þingskjal no. 21.
Nefndarállt þingnefndar í útbreiðslu-
málunum
Þingnefndin I útbreiðslumálum er sér
þess meðvitandi, hvert grundvallaratriði
þau mál, ásamt fræðslumálunum, eru I
starfi félagsins. Ennfremur gerir hún sér
ljóst, að þær tillögur, sem hér eru bornar
fram varðandi útbreiðslumálin, verða eigi
framkvæmdar án nauðsynlegra og sam-
svarandi fjárframlaga. En nefndin telur
að því fé, sem lagt er til þeirrar starfsemi,
sé ágætlega varið, þar sem um er að ræða