Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Blaðsíða 131
ÞINGTÍÐINDI
113
mönnum félagsins og bera meS sér mjög
sæmilegar efnalegar kringumstæSur.
Skýrsia bókavarðar ber meiS sér, að eitt-
hvað sé af eldri árgöngum Tímaritsins sem
fuilnaðar skilagrein frá íslendi hefir enn
ekki verið gjörð á. En á þvi stendur þann-
ig, að fé það hefir verið lagt inn I Lands-
bankann í Reykjavlk, en skilagrein frá
bankanum ekki komin vestur til vor, en
verður aðsjálfsögðu komin fyrir næsta
þjóðræknisþing.
í sambandi við umboðsmann þann, sem
þingið hefir ákveðið að ráða, sér fjármála-
nefndin sér ekki fært að leggja til neitt
ákveðið, hvorki að þvi, er timalengd á
ráðfestu, eða kaupgjalds snertir, en legg-
ur til að stjórnarnefnd félagsins sé falið
að ákveða slíkt, með fullu tilliti til sæmd-
ar þess, sem ráðin er, og fjárhagslegra
möguleika félagsins.
J. J. Bildfell, Á. P. Jóhannsson,
O. Pétursson.
Samþykt að taka skýrsluna lið fyrir lið
eftir tillögu dr. Becks, sem Mrs. Sveinsson
studdi.
Pyrsti liður samþyktur.
Annar liður samþyktur.
Þriðji liður samþyktur.
Nefndarálitið samþykt í heild sinni eftir
tillögu Miss Vidal, sem Mrs. Josephson
studdi.
Var nú hafið máls á því, að milliþinga-
nefndin í húsbyggingarmálinu myndi
Þurfa á nokkru fé að halda, ætti hún að
ftera áætlanir og rannsaka möguleika til
húsbyggingar.
Mrs. S. Backman bar fram þá tiliögu,
að þingið skyldi veita alt að 75 dollurum
úr félagssjóði I þessu augnamiði. Mr. A.
Magnússon studdi tillöguna.
Mr. Olafur Pétursson bar fram þá breyt-
ingartillögu, að málinu sé visað til vænt-
anlegrar stjórnarnefndar til frekari af-
greiðslu. Var br.till. studd af Jóni Jóns-
®mi 0g samþykt.
Nefndarálit nefndarinnar um félags-
taerki lagði nú fram sína skýrslu. — Þing-
skjal no. 34. _
Nefndin mælir með þvl að framkvæmd-
arnefnd Þjóðræknisfélagsins kaupi félags-
merki.
Sigurrós Vidal, Jón Jónatansson,
G. Féldsted.
Urðu all-miklar umræður um málið. —
Lagði ritari till., en dr. Beck studdi, að
tiilaga þingnefndarinnar sé samþykt.
Tiii. feld með 27 atkvæðum gegn 25.
Var þá rökstutt álit stjórnarnefndar-
innar, um að heppilegast myndi, að breyta
ekki þingtímanum að svo stöddu. Var álit
st. nefndarinnar talsvert rætt.
Tillaga ritara, studd af Jóni Jónssyni,
að málinu sé endurvlsað til væntanlegrar
stjórnarnefndar: Samþykt.
Þá vakti forseti máls á þvi, hvernig bæri
að svara bréfi Mr. Rósmundar Árnason-
ar viðvíkjandi minnisvarða J. M. Bjarna-
sonar. — Mr. T. J. Gtslason lagði til, en
Hjaltalln studdi, að stjórnarnefndinni sé
falið málið til afgreiðslu. Samþykt.
Þá skýrði forseti frá þvl, að félaginu
hafi borist bókagjöf frá Pállnu Johnson
I Churchbridge. Miss H. Kristjánsson lagði
til og Miss Vidal studdi, að ritara sé falið
að þakka fyrir gjöfina. Samþykt.
Þá lagði Dr. Beck fram þessa till., sem
J. J. Bildfell studdi. — pingskjal no. 35. —
Samþykt.
Þingið þakkar ritstjóra Tímaritsins og
auglýsingasafnara, ágætt starf sitt og
leggur til að Tímaritið verði gefið út á
næsta ári eins og að undanförnu og að
stjórnarnefndin ráði ritstjóra og annist að
öðru leyti útgáfu ritsins og söfnun auglýs-
inga.
Herra Sigurður Baldvinsson hóf máls á
þvl, hvert Þjóðræknisfélagið myndi ekki
geta greitt fyrir þeim, sem vildu eignast
uppdrátt af íslandi.
Dr. Beck lagði til og Miss Vidal studdi,
að stjórnarnefndinni væri falið, að hafa
framkvæmdir I þessu máii: Samþykt.
Var svo fundi frestað til kl. 8 að
kveldi.
Fundur settur kl. 8 I Sambandskirkjunni.
Fundargerð síðasta fundar lesin og sam-
þykt.
Nú gat forseti þess, að milliþinganefndin
I minjasöfnun og sögulegra gagna, væri enn
ekki skipuð.
Tillaga ritara að þessi nefnd sé nú skip-
uð, till. studd af T. J. Gíslason: Samþykt.
Þessir skipaðir I nefndina:
Séra Sigurður Olafsson
B. E. Johnson
Páll Guðmundsson
J. O. Oleson og
Séra H. E. Johnson.
Þá vakti forseti máls á nauðsyn þess, að
meira fé yrði safnað I Agnesar-sjðð.
Las hann I því sambandi bréf frá kennara
ungfrúarinnar, Madam Olga Sameroff, og
ennfremur Helen Lighten, forseta of the