Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Blaðsíða 127
ÞINGTÍÐINDI
109
Fundargerð síðasta fundar lesin og
samþykt eins og hún var lesin.
Kvaddi nú forseti Paul Bardal til að
skýra þingheimi frá hugmyndinni um
byggingu almenns Islensks samkomuhúss
I Winnipeg. Varð Mr. Bardal við þeirri
kvöð og skýrði vel og greinilega frá hug-
myndum þeirra, er áhuga hafa á því máli,
og á þörfinni á slíkri byggingu.
Er hann hafði lokið slnu máli, gerði
ritari það að sinni tillögu, að fimm manna
þingnefnd væri skipuð af forseta. Till.
studd af Magnúsi Einarssyni: Samþykt.
Skipaði forseti þessa nefnd þannig:
Olafur Pétursson
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Paul Bardal
Magnús Glslason og
Sigurður Einarsson.
Var þá málið um kennimerki tekið fyr-
ir. Kvaddi forseti G. L. Jóhannsson, að
skýra málið og gerði hann þvl góð skil.
Talsverðar umræður urðu um málið og
las ritari bréf til stjórnarnefndar frá
berra Guðjðni Friðrikssyni I Selkirk. Var
bréfið þess efnis, að slík merki væru
heppileg. — pingskjal no. 27. —
Selkirk, Man., Canada,
4. febrúar 1946.
Er. R. Beck, Grand Forks!
Kæri íslands-vinur og minn!
Eg held þú munir nú ekki ,hvaða dýr
e®a fiskur það er, sem skrifar þetta bréf
' ' e®a rissar — þvl það er orðið nokkuð
langt slðan ég hefi haft þá ánægju að sjá
Þig. En ég les alt sem þú skrifar I blöðin,
bæði I bundnu og ðbundnu máli, og fylgist
með ánægju með verkum þlnum fyrir
íand og þjóð!
Eg hugsa þú haldir ég sé orðinn elli-ær,
Þegar þú lest það, sem ég ætla að bera I
tal við þig, en það er þetta:
Mér finst Þjóðræknisfélagið hafi gert
SVo mikið gagn, á tilverutíma sinum, að
' 't’ Þjððræknisfélagar eigum skilið, að
bera merki, sem gefi það til kynna eða
sýni það, að við tilheyrum þeim félags-
slíap, með hnappi eða prjóni. Hvernig það
merki ætti að vera, er auðvitað spursmál!
^tér hefir dottið I hug handaband, sem
heldur 3 flaggstöngum, með flöggum! Is-
'enska I miðju, en Canada og Bandarlkja
sltt hvoru megin. Og áletrun “Bræðralag
eöa -band! Nú langar mig til að heyra
allt þitt á þessari karls-vitleysu, og ef að
bö felst á þetta, þá trúi ég engum betur
koma þvl I framkvæmd en þér. — Eg
mintist á þetta við séra Sigurð Olafsson
ér I bænum og var hann þvl hlyntur, og
ráðlagði mér að rita þér um það, þvi hann
eins og ég, sagði, að þar væri það best
komið!
Skyldi svo fara, að einhver merki yrði
búin til, vildi ég leggja það til, að svo stórt
yrði upplagið, að hægt væri að senda þjóð-
ræknisfélagi íslands hluta af þeim, sem
þeir vildu!
Eg held nú sé komið nóg af þessu rausi,
ég held þú getir ekki lesið þetta pár, því
höndin er orðin óstyrk, líka orðinn nokk-
uð gamall, 78 ára síðastliðið haust! Svo
bið ég þig fyrirgefa, og Óska þér og öllu
þlnu skylduliði góðs og farsæls árs.
Þinn með mestu virðingu
Guðjón S. Friðriksson.
Tillaga Miss Vidal, að forseti skipi
þriggja manna nefnd I málið. Dr. Beck
studdi og var till. samþykt.
Þessir skipaðir I nefndina:
Miss Sigurrós Vidal
Guðmundur Féldsted og
Jón Jónatansson.
Mæltist nú forseti til þess að Isak John-
son frá Seattle ávarpaði þingið og varð
hann við þeirri bón.
Þá kvaddi forseti Ásgeir Blöndal frá
Reykjavík á íslandi, til að segja nokkur
orð og varð Mr. Blöndal við þeirri hvöð.
Þá lagði Mrs. Danielsson fram skýrslu
þingnefndarinnar I fræðslumálum. — ping-
skjal no. 28. —
Skýrsla þingnefndar í fræðslumálum
Eftir að hafa vandlega ihugað skýrslur
þingnefnda I fræðslumálum, 1946 og 1946
og einnig skýrslu forseta, séra V. J. Ey-
lands, flutta á þessu þingi, finnur nefndin
til þess, að fræðslumálið er eitt hið allra
þýðingarmesta mál þingsins, og álítur að
ef það eigi að ná tilgangi slnum verði að
gera gangskör að því að skipuleggja starf-
ið tafarlaust og koma þvl á fastan grund-
völl.
Nefndin fellir sig vel við hugmyndina,
sem kom fram I forseta-skýrslunni, um að
ráða fræðslumálastjóra — og vilja karl-
mennirnir I nefndinni benda á að heppi-
legt sé að fræðslumálastjórinn sé kona. —
Nefndin leggur til:
1. Að æskilegt sé, að stofna I sambandi
við deildir Þjóðræknisfélagsins, ung-
mennafélög, sem starfa með svipuðum
hætti og Icelandic Canadian Club, þar sem
áhersla er lögð á, að fræða unga fólkið,
t. d. með fyrirlestrum um ísland og Is-