Hugur - 01.06.2009, Blaðsíða 121

Hugur - 01.06.2009, Blaðsíða 121
Ottafrjálslyndi og óttinn við frjálslyndið 119 Þriðja gagnrýni Kekes er endurómur af gamalkunnri ásökun íhaldssinna í þá veru að frjálslyndisstefnan gerist sek um óhóflega bjartsýni þegar hún leggur mat á hæfileika mannkynsins. Með öðrum orðum minnir Kekes lesendur sína á að aukið frelsi leiði ekki nauðsynlega til aukinnar góðmennsku eða velsældar. Það sé nefnilega einungis fólk sem sé vel innrætt og vanið á góða siði sem einhverjar líkur séu til að noti sitt aukna frelsi til góðs. En Kekes er einmitt ekki jafn tilbúinn og Shklar eða Rorty að gefa sér þá djörfu forsendu að lungi mannkyns sé fremur vel innrættur eða móttækilegur fyrir sómasamlegri þjálfun í siðferðilegri hegðun. Gagnrýni Kekes á óttafrjálslyndisstefnu tengist víðtækari atlögu að hinum út- breidda og gagnrýnilausa stuðningi sem frjálslynd pólitík nýtur almennt. Svo virðist sem það hafi einfaldlega verið gengið að frjálslyndisstefnunni sem vísri, að minnsta kosti þar til seint á ioda áratug síðustu aldar, og hún ekki talin þurfa að gangast undir heildstætt endurmat eða nokkurs konar enduraðlögun í grund- vallaruppbyggingu. Meirihluti stjórnspeki á síðasta þriðjungi 20stu aldar saman- stóð af deilum á milli frjálslyndra aðila af tveimur óh'kum sauðahúsum. Það hefði mátt halda að engin sjálfstæð stefna önnur en frjálslyndisstefna kæmi yfirhöfuð til greina. I þessu einstrengingslega samhengi varði Kekes tíma sínum til mótunar á afbrigði af íhaldsstefnu sem ætti að renna stoðum undir pólitískt líkan sem er andsnúið frjálslyndisstefnu og byggir á hefðum, tortryggni í garð breytinga og hóflegri útvíkkun borgaralegra réttinda. Þetta verkefni var samofið rannsóknum Kekes á illsku í manneðlinu, sem hann telur að ógerlegt sé að uppræta. Frjáls- lyndisstefnan felur í sér bjartsýna og oftar en ekki ógagnrýna mannfræði, en Kekes vill aftur á móti ólmur sýna hversu vonlaus og illa innrætt manneskjan á vanda til að vera. I þessum skilningi virðist sá illskiljanleiki grimmdarinnar sem Judith Shklar sjálfri gremst eiga ýmislegt skylt, hugmyndafræðilega séð, við hið ívið svartsýnna viðhorf Kekes til manneskjunnar og þess gagns sem hún kann að hafa af auknu frelsi. Þess vegna hefði lærdómurinn sem draga má af viðhorfi hans getað verið af öðrum toga en sá sem hún og Richard Rorty drógu.44 5. Mótsögn ífullum blóma: eftirbreytnisverðar játningar Cesare Beccaria Finna má gagnrýni á frjálslyndisstefnu sem er jafnvel enn djúpstæðari og bagalegri í kunnasta verki eins mikilvægasta fulltrúa þessarar stóru og margbreytilegu stjómmálaijölskyldu: Cesare Beccaria (1738-1794). Þrátt fyrir að bók Beccarias, Um glæpi og refsingar, hafi verið ætlað að endurbæta hegningarlög á grundvelh frjáls- lyndisstefnunnar, þá auðnaðist höfundinum að sjá fyrir sér hina „dökku“ hlið hennar. Að hans mati var sú hlið kirfilega samtvinnuð hinni „skínandi“ hhð frjáls- lyndisstefnunnar. Nánar tiltekið neitaði Beccaria því ekki að grimmd gæti þrifist 44 Ég ætla mér ekki, í þessari grein, að gera athugasemdir við eða leggja dóm á þann takmarkaða árangur sem Kekes hefur hingað til náð með þessu verkefni sínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.